Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1912, Qupperneq 1

Skinfaxi - 01.12.1912, Qupperneq 1
12. BLAÐ REYKJAVÍK, DES. 1912. III. ÁR Dagarnir líða. í Iiaust kom út hér í Reykja- í'}' kók, vjj, sem ]iejtir Einfalt líf, jþýdd úr frönsku, því máli sem ljósast er og fegurst af nútíðarmálum. Jón Jakobs- son hefur þýtt bókina svo vel að halda mætti, að hún væri frumsamin á islensku. Dókin miðuð Til að skilja réttÍleSa Þessa við auðiönd- bók, verður að gæta þess, in. að hún er skrifuð i Paris og fyrir Frakka fyrst og fremst, í þeirri borg ■og fyrir þá þjóð, sem hugvitssömust er og smekkvísust i að fullnægja breytileg- ustu óskum siðfágaðra, og nautnasjúkra manna. Hér á íslandi mundi engum hafa komið til hugar að semja slíka bók, þar sem lífskjörin neyða þorra manna til að lifa einföldu lífi, hvort sem þeim er ljúft eða leitt. Hér hafa flestir nokkurn- veginn nóg til að seðja hungrið, föt og skýli yfir höfuðið, en sáralítið fram yfir þessar þrjár frum-nauðsynjar daglegs lifs. Þannig verður lífið einfalt og óbrotið í mesta máta, af því ekki er annars úr- kostur. Sællífl í byrjuu Samt hefur á allra sein- liér á landi. ustu árunum myndast hér fámennur ílokkur, sem reynt hefur að fjarlægjast aldagamla einfeldni í h'fsvenjum íslensku þjóðarinnar og sníða sér stakk ■eftir háttsemrsællífrar uppkomnings-þjóðar, er þeir tóku sér til fyrirmyndar. Þannig má segja, að mitt i örbyrgð okkar, bóli þó lítið eitt á þvi marglæti í kröfum, sem gert hefur líf heilla stétta i auðugum löndum að endalausri, fánýtri leit eftir ytri gæðum. En þessa gætir hér svo h’tils, að varla veita því eftirtekt aðrir en þeir, sem þekkja yfirlætisbölið, eins og það birt- ist í almætti sínu í auðlöndum heimsins, þar sem menningin og fjáraflið hafi gert manninn hættulega viðkvæman fyrir hvers- konar vöntun og sársauka. Sumir slíkir menn eru svo vandfýsnir, að þeim er ekki líft nema í munaði hinna mestu auðborga Parísar, London og New-York, þar sem hugvit og hyggja ótal smælingja beinist að þvi að friða sjúkar þarfir auðkýfinganna. Dænil nin eyöslu- ^11 Þ® leitað sé frá semi í stórborg'. miljónamæringunum nið- ur á við, til þeirra sem minni kröfur gera, en þó eyðslan meiri en tali tekur. Dæmi af því tægi hefur auðugur kaupmaður í London, birt í blaði nokkru. Hann sýnir þar, hvernig einn af sonum hans þarf í minsta lagi 100 kr. á dag í smáútgjöld. Reikningurinn er svona: Vagn til skrifstofunnar. . . kr. 3,00 Vindill 1,50 Morgunverður 4,00 Vindill 1,50 Vagn heim . — 3,00 Vindill 1,50 Vagn til gildaskála . . . . — 1,50 Miðdagsverður 25,00 Þjórfé 3,00 Vindill . — 1,50 Vagn til leikhússins. . . . — 1,00 Sæti í leikhúsinu . . . — 23,00 Dagsskrá og þjórfé . . . . — 2,00

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.