Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1912, Page 8

Skinfaxi - 01.12.1912, Page 8
96 SKINFAXI 22£j[^5íi5iÍS55E«^Eí553j^S2*, SKINFAXI — mánaðarrit U. M F í. — kemur út í Reykjavík og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr. RITSTJÓRI: Jónas Jónsson frá Hriflu. Skólavöröustig 35. Afgreiðslumaður: Bjarni Þ. Magnússon Skólavörðustíg 4 B. Ritneínd: Agúst Jósefsson, Guðbrandur Magnússon, Tr. Þórhallsson. vakað yfir breytingum og þroskamun ein- slaklinganna, eftir þvi sem námstíminn líS- ur, og úrræðin löguð eftir þörfum nem- andans, þá er skiljanlegt aS betur fari, heldur heldur en þar sem hugsunarlaust er fylgt dæmi fyrri tiSa. Þetta er aSferðin, tryggingin sem á að vera fyrir því, að uppeldi einstaklingsins sé sniðið eftir þörfum hans. En þá er næst að snúa sér að framkvæmdinni sjálfri, daglega lifinu í þessum skólaheimilum. sína, ef rétt undirstaða er lögð. Þess vegna verður svo jafnan í hverjum nýu skólanna að mestur Jiluti námsins verður sameiginlegur fyrir nær því alla nemendur, — aðeins að þeir sérkennilegu fá rúm fyrir sérkennileikann; en þeir eru jafnan í minni hluta. Og að ef sýnilegt er að einhver grein námsins eða heimilis- lífsins er ekki einhverjum nemanda svo til bóta, sem ætla mætti, þá er það athugað og freistað að bæta úr því á sama hátt og læknirinn rannsakar og reynir að lækna mein sjúklingsins. Öllum mönnum finst það sjálfsagt, en hitt er ennþá svo óvanalegt, að fara með anda mannsins eins og skynsemin og heilbrigð hugsun bjóða, að langflestum mönnum þykir það hreinasta fíflska. Með þessu móti hefir tekist að fá í nýu skólunum alveg gagnólík úrslit þeim sem áður var drepið á, að tíð væru í gömlu skólunum. Taugaveiklunar verður ekki vart, unglingarnir þroskast jafnt og heilsu- samlega, þyngjast og stækka meira í skól- anum en í sumarfríinu heima, og er þó ekki skorti um að kenna, því að enn eru nýu skólarnir svo dýrir, að engir geta sent börn sín þangað, nema þeir séu menn vel efnaðir. En úrslitin eru fjarska skiljanleg, þegar þess er gætt, að nýu skólarnir hafa fyrst og fremst raðað niður staríinu öllu, náminu og vinnunni í fullu samræmi við það, sem menn best vita um eðli og þroska- lög mannsins. Og þegar þar að auki er Yindur, sól og bylgjur. Sólarvél. Allar verldegar framfarir í heiminum stefna að því að láta náítúruöfl- in vinna í staðinn fyrir mannaftið, en að maðurinn með viti sínu og kunnáttu stjórni þessum dauðu öflum og njóti siðan ávaxt- anna. Nú um stund hafa kolin hreift og hitað heiminn. En þau þrjóta; þá kemur steinolian og dregur vagn menningarinnar um stund. En svo þrýtur hún líka. I staðinn eða samhliða kolum og steinolíu koma önnur hreifiöfl. Fyrst sólarhitinn. í Ameríku er prentað með sólarafli. Geisl- unum er safnað með hrenniglerum og látn- ir falla á gufuketil; í honum myndast gufu- afl, sem snýr prentvélunum. Á Egifta- landi er soðinn matur við sólarhita. Þar er vatn hafið með sólarvél, sem er svo aflmikil, að hún lyftir 3000 pt. 33 fet á hverri mínútu. Bylgjuvél. En í köldum löndum kem- ur orka flóðs og fjöru i stað sólaraflsins. Hugvitsmaður einn, Mr. Laird hefir fengið einkaleyfi á svo nefndri bylgjuvél. Hann gerir feiknastóra gröf á flatri sjávarslrönd og á brúninni, sem veit að sjónum, er fall- hjól jafnlángt gröfinni. Um leið og flóðið fellur inn yfir hjólið, snýr það því, en hjól- ið snýr aftur hreifivél á landi. Þegar fjar- ar út og skálin er full, snýst hjólið lika. Þannig hreifir bæði flóð og útfall með sama vatnsmagninu. Þannig má framleiða nægi- legt rafmagn til að knýja áfram járnbraut- arlestir langar leiðir. Vindur og fossar. Og gleðiefni má það vera á þessum einokunardögum, að í afli vindsins og fossanna býr máttur, sem getur skapað rafmagn nóg til að lýsa hvert ein- asta býli í heiminum. Félagsprentsmiðjan.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.