Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.1913, Side 6

Skinfaxi - 01.05.1913, Side 6
38 SKINFAXI við heilsu og orku; ]iar sem vinnan er útlœg úr heimilum rita bleikir fingur úrkynjunar- innar dauðadóm ættarinnar á hallarvegg- inn. Þetta sýnir reynslan bæði um ættir og menningarríki, en þó undarlegt sé, virð- ast fáir hafa skilið ]iað réttilega. Áreynslu er alt af þörf, en þó lang helst á æsku og unglingsárunum, meðan líkam- inn er að vaxa; þá er iðjuleysið, hversu fínt sem það kann að vera, állra óhollast. Þessvegna er gullvægt að fá að vinna þá, þótt það fáist aldrei síðar. Þannig eru margar fullgildar ástæður til að nýi skólinn mentar með erfiðisvinnu; en þó er ein hin helsta ótalin enn, sú að vinnan er nauðsynlegur liður í siðgæðis- uppeldi þeirra, sem ekki þurfa að vinna. Þeim hættir annars til að vera ranglátum og skilningslausum í dómum um vinnandi stéltirnar. Þeir þekkja ekki kjör fátæk- linganna, þeirn finst, að störf þeirra séu lág og auðvirðileg, að þau séu svo alger- lega annars eðlis en athafnir hinna svo- nefndu heldri stétta, að þar sé nærekkert sameiginlegt. Ait öðru vísi er þeim farið, sem hefir sjálfur sáð og uppskorið, hamr- að járnið, staðið í reyknum, höggvið og heflað viðinn og Iímt múrvegginn. Hann veit að til þess að gera þessi verk vel, og önnur þeim lík, þarf vit, kunnáttu, æfingu, marga eiginleika sem mikils eru verðir. Hann skilur þýðing vinnunnar fyrir mann- inn, ungan og gamlan, hvað hún er og hvað hún kostar, og ekki síst hvernig hún er móðir alls þess, sem menning kallast á jörðunni. Þvílíkur maður mundi vera alt of þroskaður til að brigsla nokkrum manni með því, að hann hefði unnið áreynslu- vinnu, mundi ekki geta sakfelt um það, sem er sæmd og heiður i raun og veru. Tóbaksnotkun. Fimti hluti af íbúum jarðarinnar eða um 300 miljónir manna neyta tóbaks. Þeir ■eyða í tóbak á hverjum degi 50 milj. kr. Baugabrot. TJm dauðann. Hver er sá, sem ekki þekkir dauðann, óttast hann ekki og flýr hann meðan unt er? Jafnvel stafkarlinn gamall og lífdaga- saddur gugnar, þegar dauðinn nálgast og biður þenna óvin lífsins þess eins að iyfta á sig förumannspokanum, svo hann geti haldið leiðar sinnar. Yenjulega er litið svo á, að dauðinn sé óumflýjanlegur, og engum kærkominn, því „Þegar lífsins löngun hverfur, lifið er eðli sínu fjær.“ en hvoimgt er nema hálfur sannleikur, eftir því hvernig á er litið. Sumum líftegundum er svo háttað, að þær virðast í raun réttri ódauðlegar, þótt þær vitaskuld endurnýist stöðugt af dauðu efni. Gerlarnir og stná verur skyldar þeim eru að eins ein fruma, sem fjölgar, þann- ig, að hún fellur í tvo hluta, og er hvor þeirra sjálfstæður einstaklingur sem þá skiftist enu í tvent og svo koll af kolli. Lífþráðurinn virðist togna æ meir og meir og skiftast því lengra sem líður. Þar er enginn dauði. A sama hátt er farið þeim jurtum, sem fjölgar með jarðsprofum eða jarðrenglum, þar sem nokkur hluti móð- urjurtarinnar heldur áfram sjálfstæðu lífi eftir skilnaðinn. Og sé lengra leitað til hærri jurta og dýra er raunin hin sama: Nokkur hluti foreldranna heldur áfram lífi þeirra. Afkvæmin bjarga foreldrunum úr klóm dauðans, gera lífið ódauðlegt á jörðinni. En setjum svo að dauðinn legði niður vopnin, jafn vel að hann hlífði þó ekki væri nema einni tegund t. d. okkur mönn- unum. Mundi þá renna upp jarðneskt þúsundáraríki? Varla. Að vísu íjölgaði fólkinu, og það eltist um stund, án þess nokkur yrði að þola ástvinamissi, en um síðir færi þó svo, að of þröngt yrði á jörð-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.