Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.1913, Side 7

Skinfaxi - 01.05.1913, Side 7
SKINFAXI 39 unnni; bókstaflega gæti enginn hreyft legg eða iið. Önnur hindrun mundi koma fram fyr; fæðu mundi skorta handa fólk- inu, því að sum helstu næringarefni alls lífs eru svo takmörkuð, að þau mundi þrjóta langtum fyr en rúmið á jörðinni. Af þessum tveimur ytri ástæðum yrðu mennirnir annað hvort að hætta að fjölga eða hætta að eta. En efnaskiftalaust, end- urnýungarlaust líf er óhugsandi. Líf sem ekki breytist, vex og umskapast sífelt, er ekkert líf, heldur rotinn og fúll stöðupoil- ur, þúsund sinnum verri en nokkur dauði. Sé þannig litið á, er dauðinn vinur lífs- ins, vörður þess og fyrsta frumskilyrði, garðyrkjumaðurinn sem grysjar skóginn, fellir hallandi og hrotnu stotnana, svo að ungviðið nái i sólina og loftið og geti lif- að. Eins dauði er annars líf. A bak við garðyrkjumanninn stendur móðir náttúra eins og listasnillingurinn, sem skapar ótal tilbrigði úr sama efni og leitar sifelt meiri fullkomnunar. En á einu sviði kemur dauðinn of snemma. Það er þegar hann leggur hálf- vaxna teinungana í sömu gröf eins og gráu stofnana. Og í þessu efni má sýna vörn, og sigra. Það gera læknar og heilsu- fræðingar, sem fyrirbyggja eða lækna sjúkdóma, íþróttamenn, sem útbreiða holl- ar og hressandi iþróttir. Það gera fram- faramenn og þjóðskörungar, sem berjast fyrir bættum húsakynnum, hæfdegum vinnu- tíma, verkkaupi o. s. frv. Það verk er mikið og margskift og erfitt, en nokkuð hefir á unnist, mannsæfin lengst og lífs- kjörin batnað. Ef til vill kemur sá tími, þegar óvelkominn dauði gerist sjaldgæfur, þegar lampinn fær að loga, meðan olian endist. Til þeirra, sem svo er farið kem- ur dauðinn eins og hollvinur, sem tekur hóglega og færir í skaut góðrar móður brotinn reyr, sem þarf að endurfæðast. [Weiss: Livet og dets Love.] Bréf úr Borgarfirði. Aðalfundur í U. M. S. B. var haldinn að Hvanneyri 7. og 8. febr. Vuru þar 15 fulltrúar frá 7 félögum, en 8 eru i samhandinu. Kosinn var formaður fyrir næsta ár Jón Hannesson í Deildartungu. Rætt var um að félagar fengju ekki að vera nema í einu ungmennafélagi, en varð þó undir, því ekld þótti heppilegt að hanna þeim það, er vildu starfa víðar en i einu fé- lagi. Iþróttamótið á næsta sumri. Kosin 5 manna nefnd til að sjá um það. Ákveðið að keppa í ílokkum í sundi og glímu. Flokkur frá hverju félagi. Vinningurinn félagsins en ekki einstaklingsins. — Rætt um að koma á íþróttanámsskeiði að vorinu og þá helst við einhverja sundlaugina á hentugum stað. En nú eiga flest félögin sundlaugar orðið, og sundkunnáttunni fer stórum fram, þrátt fyrir það, þótt sýslu- nefndirnar hér synji fátækum unglingum um styrk, síðan löngunin vaknaði hjá þeim að læra að íleyta sér. Allheitar umræður urðu á fundinum um sldftingu sunnlend- ingafjórðungs, og voru menn þar á tveim- ur gagnstæðum skoðunum. Sumir vildu halda áfram samb. líkt og nú er, en aðrir vildu skilja. Eitt af málum þeim er rædd voru á fundinum var tóbaksbindindi. Fékk það góðar undirtektir. Annars virðist það mál vera dálítið að ryðja sér til rúms. Var rælt t. d. á bændanámsskeiðinu á Hvann- eyri. Virtust þar vera dálítið skiftar skoð- anir. T. d. einn af þjóðarinnar mestu mönnum og eftirbreytnisverðustu í mörg- um greinum, sem þar var staddur, sest hjá framsögumanni málsins og reykir pípu sína, og reynir þannig að varpa Ijósi yfir tóbaksnotkunina. ILvort hann hefir ætlað að láta æskumennina taka þessa list eftir sér, látum vér þó ósagt, en ótrúlegt virðist oss, að svo hafi verið, því fegurð'

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.