Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.07.1913, Side 6

Skinfaxi - 01.07.1913, Side 6
54 SKINFAXI en þær eru nú í íþróttastjórn sinni. Hún er samkvæni þeirri stefnu, að minka fjórð- ungana. Hún tryggir betur eðlilega fram- för íþróttalífsins en nú verandi fyrirkomu- lag. Komið hefir til orða aö gera þessa til- raun nú í vetur, þó að reyndar séu nokkr- ir örðugleikar á því máli. En ef til þess Jcæmi, yrði haldið íþróttanámsskeið í Rvík snemma í vetur; fjórðungurinn mundi veita þátt-takendum nokkurn styrk. Helst yrðu þeir að vera að nokkru reyndir í íþrótt- um og hafa loforð frá fáeinum félögum í sambandinu um að þeir skyldu kenna íþrótt- ir fyrir þau að afloknu námi hér. Kaup mundu kennarar þessir ekki fá frá sam- bandinu, þar sem það hafði kostað dvöl þeirra og nám í Rvík. En vitanlega ættu félögin að borga þeim. Ekkert virðist til fyrirstöðu að slíkt náms- skeið í Rvík geti borið góðan árangur. Hér eru a. m. k. betri skilyrði í því efni en nokkursstaðar á landinu. Ungir íþrótta- menn í Sunnlendingafjórðungi gerðu rétt i að athuga málið yfir sumarið, tryggja sér fylgi nokkurra U. M. F. og bíða svo átekta þar til líður að hausti. j j Áfengismál. Um það bil er stórstúkuþing templara hófst á Isafirði, símaði sambandsstjóri því samúðarkveðju Ungmennafélaganna, er templarar svöruðu með svolátandi skeyti: „Hjartanlegustu þakkir fyrir samúðar- símskeytið. Skjótið á skjaldborg með oss um bannmálið. Eftir nokkur ár eigið þér landið“. Skjóta á skjaldborg um bannlögin! Því miður eru Islendingar þannig, að beita verður þá hörðum lögum, nýjungar- girnin svo mikil og úthaldsleysið, fljótir að fallast á fagrar tillögur en þróttlausir þeg- ar til framkvæmdanna kemur. Þeim væri trúandi til að vera í viku bindindi, eftir að hafa tilbeðið bindindishugmyndina en bann- fært bannleiðina — en ekki lengur. Þá yrði úti um áhugann og alt sæti við sömu kvölina, nema hvað þjóðin hefði þá svik- ið sjálfa sig, staðið sig að því, og mist virðingu og traust á sjálfri sér fyrir vikið. íslendingar hafa lögleitt vínbann. Háð- ungarlaust getur þjóðin ekki afnumið þau lög, óreynd. Reynsla um gagnsleysi þeirra væri hið eina, sem réttlætt gæti afnám þeirra. Að ekki sé mögulegt að færa tollinn til, sem áfengið bar, er ósennilegt; eða að þjóðin komist í fjármunalegar ógöngur við að svifta hana tolli af áfengi því, er út- lendingar neyta hér, meðan hún þó fær að halda öllu því er hún sjálf eyddi í á- fengi, er enn ósennilegra. Þess vegna eiga nú allir góðir menn að gera skjaldborg um bannlögin. q ^ Örninn. Það er sorglegt að vita, hve íslenska þjóðin lítilsvirðir náttúru landsins með því að ræna fuglana eggjunum og drepa þá sjálfa. Þetta er oftast gert í eigingjörnum tilgangi, vegna augnablikshagnaðar. Þessir drápfúsu menn hugsa um það eitt, að ræna óg ná undir sig sem mestu af náttúrugæð- unum, og skeyta ekkert um afleiðingarnar. Við Islendingar Iiöfum útrýmt einnifugla- tegund, geirfuglinum, með fyrirhyggjulausu drápi. Ilann er nú algerlega afmáður úr tölulifandidýraá hnettinum, og kemur aldrei aftur, hve mjög sem síðari kynslóðir kunna að harma, að svo illa var við hann breytt. Og þó okkur væri boðinn allur auður ver- aldarinnar, gætum við ekki komið með eitt einasta lifandi eintak af honum. Þetta er ilt. Allir sjá það, skilja það, vita það, en láta þó þessa þekkingu ekki hafa nein áhrif á gerðir sínar. Sömu

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.