Skinfaxi - 01.10.1914, Blaðsíða 1
10. BLAÐ REYKJAVÍK, OKTÓBER 1914. V. ÁR
Merkileg ráðstöfun.
Mentaskólinn er hér á landi eina hliðið,
sem opnar Islendingum leið til embætta
og vísindamentunar. Hann heíir verið al-
pjóðleg stofnun, fyrst og fremst af [iví,
að þjóðin kostar hann, í
Allir jafnir fyr- . ,
ir lögunum. oðl'u 'aS1 af Í,V1> að þeir
sem þar stunda nám,
verða flestir síðar að meir eða minna
leyti starfsmenn þjóðfélagsins, og í þriðja
lagi af því að þar hafa allar stéttir átt
aðgang að ókeypis kenslu. Höfuðskilyrði
við skólavist þar hefir verið og það, að
lærisveinarnir gæti fullnægt prófskilyrðun-
um, lært á tilsettum tíma það, sem kraf-
ist var í reglugerðinni. Af þessu leiddi,
að menn komu í skólann mjög misgaml-
ir. Reykvíkingar og efnamenn út um
land sendu þangað sonu sína á fermingar-
aldri. En fátækir piltar, sem brutust áfram
að mestu eða alveg af eigin ramleik, gátu
ekki byrjað fyr en þeir voru fullorðnir,
færir til vinnu, og búnir að vinna sér álit
manna, sem gátu rétt þeim hjálparhönd.
Báðir koniust að sama marki. En fátæk-
lingurinn galt að því einu leyti aðstöðu
sinnar, að liann komst seinna í embætti,
heldur en sá er byrjaði harnungur. En
um það var að jafnaði ekki fengist, og
margir af hinum þjóðnýtustu mönnnm
okkar hafa komið fullorðnir í skóla.
Tilraun að gera En nú er þessu breytt.
embættisvaldið í reglugerð þeirri sem
arfgengt. búin var til handa skól-
anum fyrir fáeinum árum, var skólinn klof-
inn í tvær deildír: gagnfræðadeild og lær-
dómsdeild og þrír bekkir i hvorri. Ný-
sveinar skyldu ekki teknir nema í fyrsta
bekk í hvorri deild. Og inn í neðsta bekk
gagnfræðadeildarinnar skyldu engir teknir
eldri en 15 ára.
Þetta varð til þess að í neðri deild skól-
ans komu nú ekki lengur neinir fullorðnir,
sjálfstuddir menn, heldur börn úr Rvik,
og hörn einstakra embættis- og efnamanna
annarsstaðar að. Fátækir drengir ofan úr
sveitum gátu ekki hugsað til að fylgjast
með á þeim aldri. Þeir höfðu ekki úr að
s]fila fi—700 kr. árlega, fermingarárið og
næstu missiri ]iar á eftir.
Þó var ekki enn lokað öllum sundum
fyrir þessum mönnum. Ef þeim tókst að
lesa utanskóla gagnfræðanámið, og ná
þriðjabekkjarprófi i Rvík, þá veitti stjórn
skólans þeim venjulega inntöku í lærdóms-
deildina, þó að þeir væru fullorðnir. En
flestir þessara manna hafa nú síðari árin
lesið til gagnfræðaprófs á Akureyri, síðan
samband komst á milli skólanna. Hafa
þaðan komið margir mannvænlegir menn
i 4. hekk mentaskólans hin siðustu ár.
Mun svo reynast siðar, að þá skortir eigi
manndóm á við námsbræður sína, þótt
ekki ættu þeir offjár um fermingaraldur
til að komast þá í skólann í Rvík.
En það er eins og einhver voldugur
andi hafi unnið þess dýran eið, að loka
mentaskólanum og háskólanum fyrir þeim
unglingum öllum, sem ekki hafa 6 — 700
kr. i árstekjur þegar á fermingaraldri. Og