Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1914, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.11.1914, Blaðsíða 3
SKINFAXI 131 óska íslensku |)]óðinni góðra gjafa á óska- stund, þá bæri fremur öllu öðru að biðja um andlegt hugrekki og karlmannskjark henni til banda, þvi að án þeirra kosta eru menn og þjóðir eins og brotinn reyr, eða strá af vindi skekið. Heima og erlendis. Strandg-æsliiu. Nýlega hefir birst í einu blaðinu átak- anleg lýsing af landhelgisbrotunum hér við land. Höf. sannar, að útlend skip ausa upp of fjár með landhelgisveiðum hér við strendur landsins, og að danska varðskipið getur lítið við ráðið, svo sem öllum er kunnugt. Verður vitanlega ald- rei úr þessu bætt, fyr en við erum menn til að taka að okkur strandvarnirnar sjálf- ir. Nú er þess að gæta, að þingið hefir fagt góðan grundvöll í þessu máli. Sekt- ir fyrir laudhelgisbröt renna nú i sérstak- an sjóð, sem vex með ári hverju. Áður langt liður kemur sá tími, að hægt væri aö kaupa einn fallbyssubát, lítinn en nægi- lega hraðskreiðan, til að skjóta brotamönn- unum skelk í bringu. Þó myndi einn bátur ekki nægja. Fjórir þurfa þeir að vera en þá er líka nóg að gert. Allar líkur eru til, að því betri sem strandgæsl- an er, því betur myndi hún borga sig, bæði af sektum, og þó enn fremur af aukn- um fiskiveiðum. Fjöldi ungra manna byrjar árlega á sjómensku, og ætla að gera þá atvinnu að æfistaríi. Þeir verða, eins og aðrir menn, að hugsa um og starfa að viðreisn landsins, og í þeirra verkahring er nýtileg strandgæsla, unnin af Islendingun), eitthvert mesta verkefnið, sem nú þarf að vinna að. Nýbýlamiílið komst loksins inn á þingið í sumar. Flutningsmaður var Jóhann í Sveinatungu. Hann á þakkir skilið fyrir að hafa hrint mál- inu áleiðis. Þingið gerði að vísu ekki ann- að en að leggja til, að gögnum og skýrsl- um yrði safnað um málib. Sennilega hefir þess þurft, þvi að engar likur eru til að „grasbýli“ Jóh. verði að tilætluðum notum. Af þeim myndi ílestum leiða nokkurskon- ar húsmenskustétt, sem yrði að leita sér aukaatvinnu samhliða búskapnum. En það er ekki þetta sem hér þarf við. Við þurfum bændur og jarðir, en ekki „hús- menn“ og grasbýli. Við höfum mikið af stórum jörðum sem má skifta í tvent eða þrent. Mörg börn eru á sama bæ. For- eldrarnir eiga jörðina. En að þeim látn- um fær eitt barnið föðurleyfðina, þó öll vildu þau hafa hnossið hlotið. Margbýli á einum bæ gefst illa, nema væri um stundarsakir, meðan verið væri að byggja einu eða tvo bæi í landareigninni og rækta þar nokkur tún. Þannig mun verða far- ið að, þegar til landnáms kemur, þar sem ekki er um stórfelda áveituræktun að ræða. E. II. um rælctun. Eins og atlir vita leggur skáldlð E. B. gerva hönd á íleira en Ijóðagerð. Hann hefir nýlega ílutt djarfmannlegar kenning- ar um ræktunarmálið í einu vikublaðinu. E. B. er stórhuga, svo að allur þorri manna mun trauðlega fylgja honum alla götu. Samt eru uppástungur hans hress- andi. Hann sér, eins og allir sem eitt- livað sjá, oð hér eru þrír vegir opnir til að nota náttúrugæði landsins: Að rækta gras, að veiða fisk, og að hagnýta sér vatnsaflið til iðnaðar. Um hið siðasttalda er ekki þörf að tala nú. Ræktunin bygg- ist nú um langt skeið á þvi, að nota jök- ulvatnið til áveitu á sléttur landsins, eink- um á Suðurlandi og í Skagafirði. Til þess þarf útlent fé, og það vill E. B. fá hjá Dönum, sem vonlegt er, þar sem hann hugsar sér, að bandalag og bræðralag liald- ist til eilífðar milli Islands og Danmerkur. En frá sjónarmiði þeirra sem ekki vilja

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.