Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1914, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.11.1914, Blaðsíða 7
SKtNFAXi 135 Smávegis um filistea. Ymsir góðir menn halda, að engir menn séu eins slæmir og Jóh. Markússon, sem lýst heíir verið hér í blaðinu. Þeim skilst ekki, að nauðsyn sé að vekja unglingana til umhugsunar í þessum efnum. Þeir um það. En skeð getur, ef þeir ættu að borga þessa bjartsýnu lífsskoðun með nokkur þúsund krónum, að þá kæmi annað hljóð í strokkinn. Lesendur Skinfaxa munu minnast þess, hvernig Jóh. Markússon ginti tvo bræður, ölóða, til að ganga í mörg þúsund króna ábyrgð. Svo liðu fáeinir mánuðir. Þá fréttist að Jóh. hafði selt öðrum filistea þessa skuldakröfu fyrir 3000 kr. Sá seldi öðrum „stéttarbróður“ skjalið fyrir 4000. Og hann þröngvaði bræðrunum til að inn- leysa það með 5000 kr., og er sagt að þeir hafi nú gert það „með aðstoð góðra vina“. En Jóh. hefir hröklast burtu úr Grund. En í sýslunni þeirri eru ýmsir menn í ábyrgðum fyrir hann, sem nema 50—60 þús. kr. Þvi miður kemur siðar að skulda- dögunum fyrir þeim mönnum líka. I borginni Y. eru margir filistear og hættulegir. En einna skæðastir eru sumir húsabraskararnir. Þeim hefir tekist að koma því lagi á, að húseignir þar eru virtar alt að þvi helmingi hærra en þær eru verðar. Er það gert til að þær séu betra veð í bönkunum — og til að villa ókunnugum sýn. Bóndi nokkur kom til V. og vildi kaupa hús fyrir góða jörð sem hann átti. Nú kaupir hann hús fyrir 40,000 kr.; og var það virðingarverð. En raunar kostaði húsið ekki nema 25,000, og vissu það allir kunnugir. Hann lætur nú jörðina á 15,000 kr. upp i Iiúsið, og var það sannvirði. Þannig losnaði bónd- inn við stórbýli þetta fyrir ekki neitt. Hngsandi menn kanpa bækur og lesa. Yér útvegum hverja ])á bók, sem fáan- leg er innan lands og utan, og sendum bækurhvert á laud sem vera skal. Send- ið oss pantanir yðar. Bókaversl. Sigfúsar Eymundssonar Reykjavik. íslandi alt! Hver þjóðrækinn maður — karl og kona — notar f'remur framleiðslu sinnar eigin þjóðar, en annara. klæðaverksmiðjan í Reykjavík, er alíslenskt iðnaðarfyrirtæki, er fram- leiðir lialdgóða og ótlýra dúka og prjónaband, eingöngu unnið ur ísleEskri. ill. Sýnið í verkinu: íslandi alt! Ungmennafélagar! Látið þá sem auglýsa í Skinfaxa, sitja fyrir viðskiftum að öðru jöfnu. 1. og 5. tbl. af I. ári og 1.—8. bl. af III. ári Skinfaxa eru keypt háu verði á. afgreiðslu blaðsins.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.