Skinfaxi - 01.11.1914, Side 6
134
SKINFAXI
skipulagi. Ætlar samband þetta að gang-
ast fyrir íþróttanámsskeiði á Breiðumýri
nú í vetur, og héraðsmóti i vor á sama
stað. Er ráðgert að þar verði iðnsýning
um sama leyti. Skinfaxi vonar að geta
skýrt nánar frá sambandi þessu áður en
langt um líður.
Fyrii'lestrar.
Stjórn Sunnlendingafjórðungs hefir beðið
ýmsa menn að balda fyrirlestra víðsvegar
á sambandssvæðinu. Þessir menn hafa nú
þegar lofað aðstoð sinni: Bjarni Asgeirs-
son, Páll Jónsson á Hvanneyri, sr. Jakob
0. Lárusson og Guðbrandur Magnússon.
Fj.stjórnin þykist viss um, að fleiri muni
verða við tilmælum hennar.
Skemtiferð U. M. F. A,
U. M. F. „ Afturelding" — í Mosfells-
sveit — hefir nú í nokkur ár farið skemti-
ferð á liverju sumri.
Farið hefir verið eitthvert þangað, er
öðru fremur fagurt þykir og tilkomumikið,
og því oftast „til fjalla“.
í ferðum þessum hafa allir félagar tekið
þátt, er tök hafa haft til, og einnig oftast
nokkrir utanfélagar.
Lengst ferð, er félagið hefir farið, er
sú, er það fór síðastliðið sumar, og skal
hér nokkuð frá henni sagt.
Ákveðið hafði verið að mætast að Mið-
dal á laugardagsmorguninn 18. júlí. Var
lagt af stað laust fyrir hádegi — og dag-
leiðin ákveðin til Þrastaskógar. Farið var
sem leið liggur, austur Hellisheiði um
Ölves að Ölvesárbrú; var dvalið þar dá-
lítinn tíma. Farið þaðan til baka og upp
Grímsnessbraut, að Alviðru. Þar er gott að
koma. Var hestum komið fyrir þar um
nóttina, en menn gengu til skógar —
Þrastarskógar, eignar okkar allra. Þar
sváfum við um nóttina, og vöknuðum
— „alhress í ilmandi lund“ — í aftur-
elding.
Fagur þótti okkur skógurinn, og ósk-
uðum að annar eins væri kominn „heim“
til að gefa mosanum og melunum okkar
líf og lit. —
Árla var af stað farið og haldið upp
með Sogi, að austan, og upp fyrir Þing-
vallavatn, um Þingvöll — og heim. Kom-
um að Miðdal kl. 8 á sunnudagskvöldið;
höfðum þá verið um 33 tíma í burtu.
Voru alls í förinni 36 menn, með um
50 hesta. Fengum ágætt veður alla leið,
nema af Þingvöllum. — Slíkar ferðir ættu
að vera nfiklu almennari hjá ungmenna-
félögum, en enn eru þær.
Það er bæði heilnæmt og hressandi að
hrista af sér „dalalæðuna“ og halda til
heiða og teiga að sér fjallaloftið ferska.
Og þá ekki minna í varið, að víkka sjón-
deildarhringinn, njóta útsýnisins víðfaðma.
En slíkar ferðir gera annað og meira.
Þær auka samúð og kynningu félaganna
inn á við og það munar mestu.
G. Þ.
U. 31. F. Dsigreiining
hefir bréfakvöld 31. desember þ. á.
Fjórðungsstj órn Suuul cnd in gaf jórð-
ung'S hefir skipað oss undirrituð til að
íhuga, hvað U. M. F. I. geti gert fyrir
hreinsun og verndun móðurmálsins og
koma fram með tillögur þar að lútandi.
Skorum vér því hér með á alla, sem vilja
leggja gott lil þessa máls, að láta oss í
té þær hugmyndir og bendingar, málinu
til styrktar, sem þeir geta. Mælumst vér
lil þess, að menn sendi tillögur sínar sem
fyrst, til ritstj. Skinfaxa.
Reykjavík 20. nóv. 1914.
Inga Lárusdóttir. Kristján Albertsson.
Jónas Jónsson.