Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.1915, Page 1

Skinfaxi - 01.01.1915, Page 1
1. BLAÐ REYKJAVÍK, JANÚAR 1915. VI. ÁR Endurreisn íslands. Eramtíöurlaudið og grainla landiö. Nú eru tímamót, og |iá eru menn best hugsandi, horfa yfir farinn veg og reyna að skygnast inn á ófarnar leiðir. Þá bind- ast menn góðum heitum. Mörg verða að engu, en sum rætast. Hvers eigum við að vona? Höfum við nokkurra réttmætra bæna að biðja? Flestum mun finnast það. Hér eru ófal mein, ótal skæðir óvin- ir að sigra; og hins vegar hyllir undir framtíðarlandið, ísland endurfœtt, frjálst og stórt. Alt er til að hvetja þjóðina áfram, bæði núlíðandi raunir og bjartar framtíðarvonir. Islendingar þurfa ekki að harma, að allir sigrar séu frá þeim teknir, af gengi forfeðranna. Verkefnin eru meir en nóg. Og fyrir djarlá, hugsandi kyn- slóð ei- varla til annað meira gleðiefni en mikil mótstaða og að haki hindrananna hin þráðu sigurlaun. Við tökum við, með nýja árinu, stóru, vanræktu landi, með dreifðri, sundurlyndri og máttlítilli þjóð. Auðsuppspretturnar liggja ónotaðar: frjó mold, sem gæti fætt og klætt miljónir manna, víðáttumikil engjaflæmi, sem jökulárnar geta gert að dýrindis ræktarlandi, óþrotlegar steinbyrgð- ir í hús og önnur mannvirki, þúsund ár og lækir með ósegjanlegum mætti til að vinna fyrir þjóðina og til að lýsa henni og hita i ótal aldir. Margar góðar hafn- ir, og kring um alt landið hin bestu fiski- mið, sem til eru á þessari jörð. Og sé spurt um þjóðina, þá er hún að vísu magnlítil nú, en þó góðrar ættar, jafn- borin og náskyld forustuþjóðum heimsins, og í reyndinni jafnsnjöll þeim um ein- staklingsþroska, þar sem okkar menn byrja leik með sömu aðstöðu. Hverju skiftir þá, þó hér séu margir menn hungr- aðir, klæðlitlir, veiklaðir, kaldir, fátækir, fáfróðir, sundraðir, ófrjálsir og smáðir af umheiminum? Landið sjálft og náttúru- far fólksins er svo gott, að eigi verður betra óskað. Ef rétt er að farið, getur hér lifað, í fyrirmyndarlandi, máttug þjóð, þótt fámenn verði að tölunni til. Hvort þetta verður, eða verður ekki, er kornið undir því, Jivert við stefnum á komandi árum, hvort við stefnum til hins fyrir- heitna lands eða ráfum viltir yfir eyði- merkur. ,, ,. Á unglingsárunum stendur Yeg-amót. , v hver æskumaður a vegamot- um. Hann getur valið um marga lífsvegi; það val kemur honum sjálfum mest við. En hann getur líka valið um ýmsar leið- ir i þjóðarbaráttunni, þar sem hann er örlítil, sjálfskynjandi vera í stórri heild. En máttur og megin þeirrar heildar er þó komið undir eðli og ástandi einstak- linganna. Það er þetta efni, stefnur ís- lenskra borgara í viðreisnarmáli þjóð- arinnar, sem hér verða gerðar að um- talsefni. Viðreisn þjóðarinnar verður tal- in fullkomin, þegar meginþorri Islendinga eru menn líkamlega og andlega hraustir

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.