Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1917, Síða 2

Skinfaxi - 01.01.1917, Síða 2
SKINFAXÍ. á Félögin geta ekki lifað nema sem æsku- mannahreyfing, þar sem stöðugt bætist við í hópinn, eftir ]jví sem hinir eldri týna tölunni, út í lífsbaráttuna. Á sama hátt þarf yfirstjórn félaganna að yngjast upp, svo að æskan í landinu finni að hún eigi eðlilegan griðastað innan vébanda félag- anna. Mjög líklegt er að einhver breyting verði á útkomu blaðsins. Vegna síhækkandi útgáfukostnaðs er sennilegt að blaðið verði að minka enn, svo að öll tölublöðin verði einföld eða því sem nær. Hefir nú papp- ír og prentun hækkað meir en um helm- ing síðan styrjöldin hófst. En þrátt fyrir alla örðugleika er útlitið gott — einkum lengra framundan, hinum megin við sorta þann, sem leggur upp af vígvöllunum. Nú erjfengin staðgóð reynsla um margt, sem lýtur að stjórn og skipulagi félaganna. Og öll ástæða er til að vona hins besta um framtíð þeirra, þegar forustan verður falin þeim, sem í einu hafa eld æskunn- ar og reynslu undanfarinna samherja við að styðjast. Eldabuskan. Illa greidd og illa þvegin arkar hún sama stutta veginn, hvíldarlaust, en hvíldum fegin, hvarmadöpur og ellimóð. Sveitarkerling, sjötugt fljóð. Meðan aðrir sælir sofa sækir hún taðið út í kofa og kveikir undir grautnum glóð. Húkir ’hún þar í hlóða svælu, horfir sljótt í logans gælu. — Inn í forna sjafnarsælu seiðist hún við eldskinið. Gamla hjartað hrekkur við, Og nautnir fyrir fimmtíu árum fleyta henni á minnisbárum út á dýpstu draumamið. Sér hún gumann sveina hæstan sýslumanninum tignarnæstan prestinn unga, íturglæstan eins á vöxt sem hár og hvarm. — Hvílir ’hún við hans breiða barm. Svona gátu þau setið löngum, setið inni’ — og frammi’ í göngum kyst og fléttað arm við arm. Situr hún lengi í sjafnardraumi sæl í liðnum vona glaumi. — Gæfan reyndist treg í taumi og trygðin eins og fiðrildið. En tál og sorgir, þegið þið! Hrekkur ’hún ujip því húsfreyjunni, hrjóta svarra orð af munni: — Besta súpa’ er brunnin við. (Iðunn.) Fagrar listir. Eldabuskan. Listamannastyrknum hefir verið skift nýlega milli margra verðugra. Reynt að metta marga með litlu. En við þetta borð var ekki settur Jakob Thorarensen, ungur trésmiður í Reykjavík, sem gert hefir það kvæði, sem mér hefir þótt mest til koma at þeim ljóðum, sem eg veit til að hafa verið orkt á íslensku síðustu missirin. Ekkert er nýtt undir sólunni, sist hið eilífa yrkisefni skáldanna, vorhugsunin i rnannssálinni, taflið um ljósið og lífið, um sigur eða ósigur djúptækustu vonanna. Alt af er þessi sama saga sögð, alt af er hún ung og ný, alt af snertir hún instu strengi sálarinnar þegar mikill listamaður fer um hana höndum og bætir við hana broti af sinni eigin reynslu, Myndhöggv*

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.