Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1917, Page 4

Skinfaxi - 01.06.1917, Page 4
44 SKINFAX1 ni, nema eg veit að þeir ferðast talsvert á sumrin, fara það gangandi, liggja í tjöld- um og sjá sér víst að mestu farborða. Nú er það eitt atriði í skátalögunum sem eg öfunda þá af, fyrir hönd U. M. F. en það er áherslan sem þeir leggja á lög- hlýðnina. Löghlýðni hefir altaf verið eitur í beinum okkar Islendinga og þess- vegna gengur svo illa að mynda hér fé- lög, eða föst samtök, menn vilja ekki lúta lögunum, eða skuldbindingunni sem hlýt- ur að vera því samfara. Sjálfræðishneigð- in er of sterk. Menn kalla það frelsi, en þad heitir pað ekki, þvert á móti, því það getur einmitt valdið hinni þyngstu ánauð. „Sú þjóð sem missir stjórn á sjálfri sér er glötuð“, sagði Roosevelt forseti einhverntíma, en sú setning gildir ekki síður um hvern einstakling. En svo eg snúi mér nú aftur að U. M. F. þá finst mér það einkum vera skortur á stjórnsemi og stundvísi sem mestri veld- ur óánægju. — Ef fyr væri byrjað, fundir og annað, þá mætti hætta fyr, og færi minni tími í að bíða eftir þeim sem ekki „voru viðbúnir". Það þyrfti að fylgja formannsstöðunni vald, til að láta hlýða sér skilyrðalaust, eins og skátar gera svo fremi að því valdi sé ekki misbeitt. Ungmenningar mega ekki skella skolleyr- um við óánægju eldra fólksins, ef hún er á sanngirni bygð. — Almannarómur er voldugt vald, sem stórmikið er betra að liafa með sér en á móti. — En — eldra fólkið má heldur ekki gleyma því, að það var einu sinni ungt, og að ungmenningar eru börn þess, og frændur og framtíðar- vonir. Og þessi margtugða spurning um aðgerðir U. M. félaga er einkar ósann- gjörn. Hvað gera þeir á sunnudögum unglingarnir sem ekki eru í U. M. F.? Eg veit ekki til að á öllu íslandi sé nokk- ur þúfa, kofi, runnur eða reitur, til minja um verklegar framkvæmdir neinna þeirra unglinga sem hér hafa vaxið upp frá alda öðli, alt þangað til U. M. F. voru stofnuð, en síðan sést það víða, og hvarvetna sem gleðilegur vottur fratnfara viðleitni. Sama er að segja um ungmennin sjálf; merkui- ungmenningur hefir sagt við mig í bréfi: Eg er ekki mikið að manni, en minni væri eg hefði eg aldrei verið U. M. félagi. Og undir það hygg eg að margir taki. — Því leyfiegméraðsegjaafsannfæringu: Ung- mennafélögin taki fratnförum og lifi! — Ágrip af þiuggerð sambauds U. M. F. í Vestur-Skaftafellssýslu. Á þinginu mættu 10 fulltrúar frá 8 fé- Iögum. Birtist hér í ágripi hið helsta, er þar gerðist. I. Samin og samþykt fjárhagsáætlum fyrir þetta ár, þannig: Tekjur: Greitt og ógreitt frá fél. í sam- bandinu....................kr. 50,00 Frá Sunnlendingafjórðungi . — 58,00 Áætlaður skattur af félögum . — 57,00 Alls kr. 165,00 Gjöld: Til íþróttamóts..................— 25,00 — Fulltrúa á sambandsþing . — 60,00 — manns er ferðast milli félag- anna.........................— 30,00 Stjórnarkostnaður .... — 15,00 Óviss útgjöld ...... — 35,00 Alls kr. 165,00 II. Samþykt að leggja 20 aura skatt á hvern félaga er gangi til „Héraðssam- bandsins" III. Þessar tillögur voiu samþyktar um íþróttamál: 1. Að haldið verði íþróttamót í Héraðs-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.