Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1918, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.05.1918, Blaðsíða 3
SKINFAX) 35 Fjóðungsþing U. M F. Vestfjarða 1918 háð að Kirkjubóli í Korpudal i Önund- arfirði dagana 28.-29. mars. Á þinginu mættu 13 fulltrúar frá 10 fé- lögum af 12, sem eru í fjórSungnum. Málefni: I. íþróttastarfsemi, fyrirlestrar og heimilisiðnaður. Tillaga samþykt frá starfsmálanefnd svohljóðandi: 1. Fy ri rlestrar: a. „Nefndin leggur til að fjórðungsstjórn- in ráði mann, eða menn, til að flytja fyr- irlestra í félögunum fjórðungsins næsta vetur“. b. „Einnig að sambandið styrki fyrir- lestrastarfsemina innan fjórðungsins11. 2. í þ r ó 11 i r: „Nefndin leggur til að félögin komi á íþróttaflokkum innan vébanda sinna, og að þeir flokkar kornist í samband við „I. S. I.“ — Flokkar þessir beiti sér fyrir íþróttastarfsemi og auki íþróttaáhugann; æfi einkum útifþróttir og undirbúi þannig samkeppni á væntanlegum íþróttamótum11. b. „Nefndin telur sjálfsagl að fjórðungs- sjóður og sambandið slyrki iþróttastarfsemi félaganna með fjárframlögum eftir föng- um“. 3. Heimilisiðnaður. „Nefndin leggur til að heimilisiðnaðar- starfsemi sé haldið áfram á tjórðungs- svæðinu : a. Með því að styrkja að minsta kosti eitt félag á ári bverju til þess að halda uppi námsskeiði í einhverri heimilisiðnað- argrein, og séu þau félög látin sitja í fyr- irrúmi, sem eigi hafa áður haft námsskeið og örðugt eiga aðstöðu. b. Með því að fjórðungsstjórnin ogaðr- ir ráðandi menn innan félaganna hvetji lil þessarar starfsemi og geri áhrif hennar sem víðtækust11. II. Fjórðungslögin og fjórðungsskattw. 1. Samkvæmt samþykt frá siðasta sam- bandsþingi ákvað fjórðungsþingið að kjósa þriggja manna milliþinganefnd til þess að athuga fjórðungslögin. Og var jafnframt ákveðið að hvert félag í fjórðungnum at- hugi málið heimafyrir og sendi síðan nefnd- inni álit sitt. — í nefndina voru kosnir: kennari Björn Guðmundsson Næfranesi Dýrafirði. Bjarni Ivarsson Kotnúpi Dýrafirði. Jóhannes Daviðsson Neðri-Hjarðardal Dýrafirði. Varamenn: Gestur Gestsson kennari Næfranesi Dýra- firði. Júlíus Rósinkransson Tröð í Önundar- firði. Kristján Daviðsson Neðri-Hjarðardal Dýrafirði. 2. Fjórðu ngsskattur. — Tillaga samþykt: „Fjórðungsþingið leggur til að fjórðungs- skattur verði hækkaður úr 35 aurum upp í 60 aura11. III. Vm sJátt. og útisamkomur. Svo- hljóðandi tillaga samþykt i einu liljóði: a. „Fjórðungsþingið álítur að útisam- komur séu nauðsynlegar til félagseílingar Þingið beinir þvi til félaganna að þau hafi útisamkomur einusinni á sumri, og taki fleiri félög saman í héraði eða víðar eftir því sem fært þykir. b. Fjórðungsþingið álítur mjög mauð- synlegt að erindi dr. Guðm. Finnbogason- ar: „um slátt11, sé tekið til alvarlegrar at- hugunar og beinir því til fulltrúanna að þeir hlutist til um það heima í félögum sínum að þau taki sláttinn í íþróttatölu og auki á þann hátt verklœgni heima- fyrir og kapp um liversdagslegu störf- inu. IV. Mentamál. Svohljóðandi tillaga var samþykt í einu hljóði: „Þing vestfirðingafjórðungs U. M. F. Isl. viðurkennir að þekkingin á mannlifinu sé undirstaða allrar sannrar mentunar, og að sú þekking sé alþýðu boðin í ritum skáldu

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.