Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1918, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.05.1918, Blaðsíða 5
SKINFAXI 31 T e k j u r: EftirstöSvar frá f. ári ... kr. 171,05 Skattur fráU. M.F. Framai T8 — 6,30 - - Skildi ’18 . - 5,25 — - — Önundi '18 — 7,70 Skattur fyrir 1919 af 404 með- limum °/00 ................— 242,40 Styrkur úr sambandssjóði . . — 100,00 Samtals kr. 532,70 Gjöld: Kostnaður við fjórðungsþ. 1918 kr. 45,00 — — stjórnina f. f. ári — 10,07 — - — 1918. . — 20,00 Veittur styrkur til heimilisiðn,- námsskeiðs 1918 — 19 ... — 100,00 Til fyrirlestra 1917—18 ... - 140,00 og iþrótta 1919. — 200,00 Óviss útgjöld.......................— 17,63 Samtals kr. 532,70 IX. Kosnir í stjórn fjórðungsins: Forseti Björn Guðmundsson Næfranesi Dýrafirði. Ritari Bjarni Ivarsson Kotnúpi Dýraf. Féhirðir Kristján Davíðsson Neðri-IIjarð- ardal Dýrafirði. Varastjórn: Forseti Kristján Jónsson frá Garðsstöð- um, ísafirði. Ritari Júlíus Rósinkransson Tröð í Ön- undarfirði. Féhirðir Jóhannes DavíðssonNeðri-IIjarð- ardal Dýrafirði. Á fjórðungsþinginu voru lagðir fram til sýnis um 50 smíðisgripir er gerðir höfðu verið á námsskeiði því sem Guðmundur frá Mosdal fór með fyrir Ungmennafélögin í Önundarfirði. Fanst mönnum þar marg- ur hlutur haglega gerður. Bjarni Ivarsson. Ferðasaga. 1 miðjum marsmánuði tókst ég á hend- ur fyrirlestraferð til ungmennafélaganna á Austurlandi, að tjlhlutuii Sambandsins. Af því að engar nákvæmar fregnir hafa áður verið hirtar viðvíkjandi félagsskapnum þar eystra, vil ég hér geta þess helsta, er ég varð áskynja um starfsemi félaganna og hag. Ég lagði af stað frá Rvik 15. mars með „Lagaifossi" til Seyðisfjarðar ég kom að kvöldi hins 21. sm. að Geitagerði í Fljóts- dal. Þar á heima formaður héraðssam- bands þeirra Múlsýslinga, Sigmar Guttorms- son. Var þá þegar ákveðið, að ég skyldi byrja þar á fyrirleslrum í U. M. F. Fljóts- dæla og halda síðan út Hérað, norður i Vopnafjörð, þaðan aftur suður til félags- ins í Vallnahreppi og enda í Norðfirði. Nú fór boðið um komu mína út Hérað alt út í Hjaltastaðaþinghá. En í V. M. F. Fljótsdœla var fundur haldinn 23. í húsi félagsins að Valþjófsstað þar sem óg flutti 2 erindi fyrir 80 áheyrendum. Það félag er fjölmennasta hið þar eystra félagar um 70. Hefir það verið duglegt og starlsamt með afbrigðum. Söngkrafta hefir það besta af öllum félögunum. Ekk- ert ungm.félag á landinu mun eiga jafn veglegt fundarhús og er þvi þó ekki full- lokið enn. Það er tvær hæðir, fundarstofa uppi, eldhús og veitingastofa niðri. Síðar ætlar félagið að gera útbyggingu frá öðr- um enda hússins, fyrir leikpall. Funda- staðurinn er að öllu hinn yndislegasti, renni- sléttar grundir umhverfis húsið, fær félag- ið þar land nokkuð til umráða er það mun rækta og gróðursetja i tré, — staðurinn sem næst miðju sveitarinnar, sér þaðan út yfir Fljótið í Hallormsstaðaskóg, en ofan við grundirnar rís Valþjófsstaðafjallið, all- hátt og einkennilega fagurt. Frá jafnsléttu upp á brún skiftast á grasbelti og beinar klettaraðir, en á við og dreif um altfjall-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.