Skinfaxi - 01.05.1918, Qupperneq 8
40
SKINFAXI
gerðir 131 gripur og kendi margra grasa.
Má t. d. nefna stól, skáp, handklæða- og
ábreiðu-„hengi“, kassa ýmiskonar, einfalda
og vandaða, spegilumgerðir og mj'iidaum-
gerðir, bæði tii þess að setja á borð eða
vegg. Almenn ánægja er yfir þessari fram-
kvæmd félaganna vestra. Þykir hún hafa
farið vel úr hendi á slíkum neyðartímum,
og styður tvent að því. Fyrst áhugi félags-
manna um að koma á námsskeiðinu og
svo dugnaður og ósérhlífni Guðmundar.
Árangurinn mun og vafalaust verða nola-
sæll, jafn vel þó að margir nemendur
legðu slík störf niður með öllu.
Tiigangurinn er ekki sá, að gera alla
að iðnaðarmönnum. En vel má hitt verða,
að margir noti tómstundir sínar hér eftir
til slíkra hluta. Er það eitt sér mikill á-
vinningur auk þess sem slík störf styðja
að meiri híbýlaprýði, en hún skapar betri
og siðfágaðri menn. Þau auka og feg-
urðartilfinning manna og fegurðarvit. Loks
gæti á slíkum námsskeiðum komið í Ijós
hverjir eru smiðsefni og listfengir. En
margur hefir hnigið í gröfina með þeim
hæfileikum ósnertum, er unnið gátu ódauð-
leg verk, af því að hann fékk aldrei tæki-
færi, til þess að uppgötva hvað í sér bjó.
Ólafur Sveinsson
prentari tók sér fari með e.s. Borg til
Reyðarfjarðar. Þaðan er ferðinni heitið
upp í Hérað til þess að kenna á íþrótta-
námsskeiði, er Héraðssambandið þar hefir
gengist fyrir. Á námsskeiðinu verða senni-
lega einnig nemendur frá íþróttahandalagi
Austurlands. Félögin eystra hefir tilfinnan-
lega vantað íþróttakennara. Er nú vel séð
fyrir slíku, þvi að Ólafur er bæði vel
æfður íþróttamaður, lipur kennari og
drengur hinn besti. Má því óefað vænta
jæss að för Ólafs eíli mjög ungmenna-
félagshreyfinguna í Múlasýslum.
En vegna þessa verða lesendur hlaðsins
að bíða eftir framhaldi á greinum hans
um „Uti-íþróttirnar“.
SKINFAXI.
Mánaðarrit U. M. F. í.
Verðs 2 krónur. — Gjsilddagl fyrlr 1. júlí.
Rilsljóri: Jún Kjartansson, iíennarskólanum.
Pósthólf 516.
Tóhakshindindisflokkur
ungmennafél. Vorblóm hefir gengið i
B. T. í. Von á fleirum. Æskilegt að sem
flestir slíkir flokkar, hvar sem er á Iand-
inu, gerðu hið sama. Gæti þá Bandalagið
eflst og áhrifa þess gætt meira en nú.
Aðalfund sinn mun Bandalagið halda í
júnímánuði.
Tilkymiingar.
Skinfaxi.
Af því að allmargir hafa spurt utn
hvort blaðið fengist alt keypt, frá byrjun,
þá skal þess hér getið að nokkur eint.
eru enn til af I. árg. að 5. tbl. undan-
teknu. Af III. árg. fæst aðeins 5., 6., 8.,
9„ 10. og.ll. tbl. II., IV., V., VI., VII.,
VIII. árg. fást allir heilir.
Skýrslur
hafa komið frá U. M. F. Iðunn.
—--------Akraness.
— — — Reykjavíkur.
Jón Kristófersson
í Köldukinn tekur á móti andvirði Skin-
faxa í Austur-Húnavatnssýslu. Til hans
má og greiða eldri skuldir við hlaðið.
Athug'ið hlunnindin handa nýjum kauji-
endum og útsölumönnum, sem auglýst eru
í febrúarblaðinu.
Ársrit Fræöafélagsins geta menn feng-
iö hjá Sambandsstjórninni meö mjög lágu
verði. Lysthafendur gefi sig fram hið
fyrsta.
Félagsprentsmiðjan