Skinfaxi - 01.08.1918, Page 4
60
SKINFAXI
stúdentinn lokið námi sínu í háskólanum,
þegar allar mentastofnanir hafa gert það
er þær máttu fyrir nemendur sína, þá
tekur almennings bókasafnið við. Og eng-
inn er svo gamall né ungur, lærður eða
ólærður, lágt settur né tiginborinn að hann
sé þar óvelkominn. Bókasafnið á að vera
annað heimili barnsins og mentastofnun
hinna fullorðnu, sem enginn getur vaxið
upp úr. Það getur verið sérskóli í hverri
grein sem er. Það kemur fram í nafni
hvers konar rnannlegrar hugsunar og starfa
svo að bæði visindamenn og verkamenn
finna þar tiltök til fullkomnunar hver í
sinni grein.
En samhliða fræðslunni þarf lika hinn
mikli múgur holla skemtun og dægrastytt-
ingu. Imyndunarafl mannanna þarf við og við
vakningu og sálin hreint loft og hressingu
eigi síður en líkaminn. Því hafa söfnin
svo mikið at skáldritum í sundurlausu
máli og samföstu.
I lestrarsölum bókasafnanna eru af
sömu ástæðu og til þess að gera menn-
ingarstarfið fjölbreyttara og frekar marg-
hliða, haldnir fyrirlestrar, sumstaðar oft í
hverri viku. Til þess að auka enn á
fjölbreytnina og listagildið eiga mörg bóka-
söfnin stór myndasöfn og söfn af mótuð-
um listaverkum viðsvegar að úr heimin-
um, sömuleiðis hvers konar hljóðfæri og
sönglagasöfn.
S u n d.
Árið 1917 stunduðu 514 manns sund í
laugunum í Reykjavík hjá þeim feðgunum
Páli og Erlingi. Skiftust þeir þannig eflir
sýslum sem hér segir:
Úr Reykjavík 385
— Mýra- og Borgarfjarðarsýslu 9
— Snæfelsness- og Hnappadalssýslu 6
— Dalasýslu 7
— Barðastrandasýslu 14
— V.-ísafjs. og ísafjarðarkaupstað 11
— Strandasýslu og Húnavatnssýsln 3
— Skagafjarðarsýslu 3
— Eyjafjarðarsýslu 8
— Suður-Þingeyjarsýslu 4
— Múlasýslum 16
— Skaftafellssýslum 8
— Rángárvallasýslu 5
— Vestmannaeyjum 4
— Árnessýslu 8
— Gullbr,- og Kjósarsýslu 19
Allir þessir neniendur hafa stundað mám-
ið nokkurn tíma, lært eilt eða íleiri sund.
Siðan stríðið byrjaði hafa nemendur jafn-
an verið nokkru færri en áður, þannig
voru þeir 1916 552, 1915 600, 1914 568,
1913 638 og 1912 632. En það mun nú
vera svo, að tölur þessar séu allar heldur
lágar. Og þess ber að geta, að miklu
fleiri, en hér eru taldir koma til lauganna
við og við. Eru það bæði Reykvíkingar,
sjómenn innlendir og ferðamenn og toks
allmargt erlendra sjómanna, einkum Fær-
eyinga.
Sundlaugarnar í Reykjavík eru vafalaust
bestur staður, með þeim mönnum, sem
þar er á skipað, til sundnáins hér á landi.
Og þó brestur harla nn’kið á að þær séu
viðunandi og samboðnar, þeim skilningi
sem vakinn er á gildi íþróttarinnar og
þeim eljumönnum, sem þar starfa að
menning æskunnar. Þegar veður er all-
hvast er sjaldan þægilega heitt í laugunum
leiðslupípurnar bila oft og einatt, svo að
hætta verður kenslunni um hríð.
Væri mikil þörf á að leggja haldbetri
pípur til sundstaðarins og setja þak yfir
alla laugina með nægilega mörgum glugg-
um. Auk þess væri það til stór bóta ef
sporbraut lægi úr miðbænum til lauganna
svo að menn þyrftu ekki að fórna jafn-
löngum tíma til námsins og nú á sér slað.
En þrált fyrir þessa galla þá hefir þekk-
ing og áhugi á sundi breiðst allmikið ú f