Skinfaxi - 01.09.1918, Page 4
68
SKINFAXI
Smátt og smátt hefír hin öfluga fram-
sókn bókasafnsvina, með almenningsálitið
að baki sér, knúð fram ýmisleg hlunnindi
og styrk handa söfnunum af hálfu lög-
gjafarvalds og annara stjórnarvalda. Hef-
ir þannig verið veitt mikið til þeirra úr
fylkissjóðunum og ríkisvaldið þannig við-
urkent skyldu sína gagnvart þeim- I flest-
um fylkjunum hafa verið skipaðar laun-
aðar bóknsafnsmálastjórnir að sumu
leyti hliðstæðar fræðslumálastjórninni hér
á landí. Verður minst á starf þeirra síðar.
Hvergi í heiminum mun veja jafn mik-
ið af stórefnamönnum og í Bandaríkjun-
um og hvergi mun jafn alment að þeir
gefi stórgjafir til hverskonar framkvæmda
ogstofnana sem þar. Bókasöfnin hafa ekki
farið varhluta af gjöfum þeirra. Árið 1915
voru slíkar gjafir orðnar 260 miljónir
króna. Er mælt að J. R. Lowell hafi sagt
svo um þessar gjafir auðmannanna: „Eg
býst við að stórgjafir í lifanda lífi séu al-
gengari meðal auðmanna vorra en hjá nokk-
urri annari þjóð. Ekkert slíkt er með
öllu laust við fordild. En þó er það á-
nægjulegt að jafnoftast skuli verða fyrir
slíkum stórgjöfum lýðskólar og bókasöfn.
Varla getur nokkur maður reist sér óbrot-
gjarnari minnisvarða en með því að stofna,
og gefa almenning-.bókasaf'n. Sá sem það-
gerir mun sannarlega lifa eftir dauðann í
þakklátri endurminningu, í æ meiri þekk-
ingu og siðaþroska hverrar kynslóðar af
annari. Pýramidarnir gleyma sínum húsa-
smiðum, en bókasöfnin munu verða lang-
minnugri".
Almenningsbókasöfnin amerísku hafa sett
sér það markmið, að fullnægja lestrarþörf-
um hvers einasta borgara þjóðfelagsins, og
auk þess gera þau alt sem í mannlegu.
valdi stendur til þess auka lestrarþörf og
fróðleiksþorsta manna og til þess að laða
menn að bókunum. Þau senda erindreka
sína út á stræti og gatnamút til þess að-
þrýsta mönnum til þess að koma og færa
sér dýrmæti bókanna i nyt. Þangað koma
menn líka í hinum ólíkustu erindum. —
Stúdentar og prófessorar sækja þangað sín
ENSKUBÁLKUR.
P’ífilbrekka, gróin grund
grösug hlíð með berjalautum,
flóatetur, fífusund,
fífilbrekka, smáragrund,
yður hjá eg alla stund
uni bezt í sæld og þrautum.
Fífilbrekka, gróin grund
grösug hlíð með berjalautum.
Gljúfrabúi, gamli foss,
gilið mitt í klettaþröngum,
góða skarð með grasahnoss,
gljúfrabúi, hvítur foss,
verið hefir vel með oss,
verða mun það enn þá Iöngum.
Gljúfrabúi, gamli foss,
gilið mitt í kletta þröngum.
Jónas Hallgrímsson.
Dandelions gold and green,
Grassy banks with berries growing;
Meadow sweat the woodland queen,
PAirer flow’rs have never been.
AIl the sorrow I have seen
Fades away when the flow’rs are blowing-
Dandelious gold and green,
Grassy banks with berries growing.
Dweller in a rocky home!
Forth you come in might and splendour-
Waterfall! I love to roam,
Gazing at thy whirling foam,
Near to thee I love to roam.
Life is happy when love is tender.
Dweller in a rocky home,
Forth you come in might and splendour-
H. M. S. þýddi.