Skinfaxi - 01.09.1918, Side 6
70
SKINFAXI
íns býr, —• aö af því skuli allar þjóSir
jaröarinnar blessun hljóta.“
Úr kvæöi, er Einari var flutt vi'ö þetta
tækifæri, er þetta erindi tekiö:
Og Einar, ]>ess blik, sem bjartast skein,
J)ú bræddir í málm og hjóst í stein,
hiá komandi kynslóð aö standa. —
Með hamrafellum þíns heimaranns
þú hnyklaðir brýrnar úrlagans.
Og dýröina alla þíns draumalands
þú dróst í verk þinna handa.
Nýlega hefir Einar lokiö viö eitt lista-
verkiö enn, sem eins og fleiri myndir hans
sýna hvert gildi starf hans hefir fyrir orð-
stír þjóöarinnar. Vonar Skinfaxi að geta
síðar flutt mynd af því ásamt fleiru er
listamaðuidnn mun hafa í fórum sínum.
Félag eitt allmikið í Ameríku er nú gefa
út veglegt rit um Einar meö myndum af
öllum likneskjum eftir hann. Er slíkt hið
mesta nauðsynjaverk, þvi að á þann hátt
berst hróður listamannsins um allan heim.
Sennilega mun Einar hverfa hingaö heim
næsta sumar. En för hans til Ameríku mun
hafa auðgað hann andlega og hrest, um
leið og hún hefir orðið honum til örlítils
hagnaöar fjárhagslega. Og íslandi veröur
hún vafalaust til rnikils gagns og sóma.
Skýr sla
um aukastörf og sjálfboðavinnu í Ung-
mennafólögunum árið 1917.
U. M. F. „Ilrunamanna". Átján dags-
verlc unnin að sundlaugargerð Heimboð
gert Einari H. Kvaran.
U. M. F. „Meðallendinga“. Nokkrir fé-
lagsmenn heyjuðu handa félaginu eitt laug-
ardagskvöld
U. M. F. „ísfirðinga" hélt heimilisiðnað-
arnániskeið í 5 vikur. Kent: Teikning,
útsögun, og tréskurður. Nemendur alls
112, unnu samtals 145 muni.
U, M. F. „Garðarshólmi“. Skemtiferð
að Skógafossi. Tvisvar bögglakvöld til
ágóða }yrir fátækling. Aftansöngur á að-
fangadagskvöld jóla.
U. M. F. „Drengur“, safnaði fé til beim-
boðs Stephan G. Stephensen, safnaði í
minningarsjóð Eggerls Ólafssonar, hafin
samskot til Ferðamannahestahælis í Reykja.
vík.
U. M. F. „Drifandi“. Þátttaka i sam-
fundi undir Þríhyrningi Tvær skemlisam^
komur, önnur fyrir sjúkling á Vífilsstaða.
hæli. Tóbaksbindindisflokkur starfar-
U. M. F. „Dagsbrún“ i Austur-Landeyj-
um, starfrækir lestrarfélag hreppsins.
U M F. „Unglingur“ hélt jólatrésskemt-
un fyrir börn Fór skemttferð að sumrinu.
U. M. F. „Biskupstungna“. Félagsslúlk-
ur höfðu handavinnusýningu Farin skemti-
ferð. Frjáls samskot innan félags i hús-
byggingarsjóð Dýraverndunarfélagsins 54
krónur og 155 krónur sendar fatækum fé-
laga i jólagjöf
U M. F. „Eldborg". Unnin 1G dags-
verk að sundlaugarbyggingu.
U. M F. „Samhygð“. Hannyrðaflokk-
ur slarfar innan félags og tóbaksbindindis-
ílokkur. Leikinn sjónleiknr
U. M. F. „Hvöt í Grimsnesi“, hélt 4
skemtanir. Ein skemtiferð. Endurbætt
girðing um trjáreit. Þrír sjónleikar sýndir.
Á og starfrœkir bókasufn með yfir 500
bindum.
U. M. F. „Stór'lfur“ tók þátt i skemti-
samkomu undir Þríhyrningi.
U M. F. „Örn“. Söngæfinar 2svar i
viku í jariúar og febrúar. Þrjár opinber-
ar söngskemfanir. Unglinganámskeið, sem
getur í f. á. skýrslu, stóð til 10. febrúar.
U. M. F. „Breibablik“ í Önundarfiröi.
Tólf félagar unnu að heyvinnu fyrir far-
lama mann. Ein skemtisamkoma úti. Ein
dansskemtun. Maður seudur í póstferð á
aðfangadag jóla.
U. M. F. Framar (í Önundarf). Iðn-
sýning haldin. Ein skemtisamkoma úti
með þrem öðrum félögnm.
U. M. F. „Dagsbrún“ (í Miklaholtshreppi).