Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1918, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.12.1918, Blaðsíða 6
94 SKINFAXI Félagið er nú að koma upp glöggum hafnarmörkum í Kollavík. ]?au hefir vantað, en útræði allmikið þaðan. Tvis- var hefir fclagið skotið saman nokkr- um krónum handa fátækum. Sunnudaginn 4. ágúst s. 1. fór félagið skemtiferð inn að Vestur-Botni í Pat- reksfirði. Voru 42 manns í förinni, flest Ungmennafélagar. þegar inneftir kom, bættust við 16 manns í hópinn,af Rauða- sandi, flest félagar úr U. M. F. Von, sem er utan sambands. Aðalskemtunin, þeg- ar komið var á staðinn, varð nú hjá mörgum, að skoða skógarleifar fjarðar- ins. par var og talað fyrir minni íslands og tvær ræður fluttar við lendingar- staðinn og svo söngur og samræður, leikir og dans. Allir undu vel ferðinni og voru sam- mála um, að hún væri besta skemtiferð- in sín, enda var líka liið allra besta veð- ur, bæði á sjó og landi. F. Ungmennfélag Kennaraskólans var endurreist skömmu eftir vetur- nælurnar. Er það að vonum nokkuð fá- ment, þar scm nemendur eru nú með fæsta móti í skólanum. Guðm. Davíðs- son fyrv. sambandsstjóri flutti erindi um þjóðgarð á pingvöllum, á fundi í fé- laginu. Síðar flutti sklastjóri erindi um ýms atriði úr sögu íslands. Skinfaxi hef- ir áður bent á, hversu mikilvægt það sé fyrir stefnuna, að hugsjónir félags- skaparins séu vel túlkaðar í Kennara- skólanum. Ungmennafélögin á Héraði héldu tvær íþróttasamkomur í sumar er leið; aðra i Atlavík, en hina á Eiðum. Var hin síðarnefnda allfjölmenn og vel undirbúin af ritara héraðssambandsins Magnúsi Stefánssyni á Eiðum. par kom Einar H. Kvaran, er var þá á ferðalagi 8KINFAXI. Mánaðarrit U. M. F. í. Verö: 2 krónur. — Ojulddagi fyrir 1. júlí. Rilstjóri: Jón Kjartansson, Skállioltsstfg 7. Póslliólf 516. um Austurland, og flutti erindi á sam- komunni. Söngur var þar um hönd hafður og ýmsar íþróttir sýndar. Nú ríður á, að þeir íþróttamenn, sem sóttu námsskcið Ólafs Sveinssonar að Val- þófsslað í vor, lialdi við íþróttum sínum og kenni þær heima fyrir í félögunum. pað er að miklu leyti undir þrautsegju þeirra og alúð komið, hvort gagn verð- ur að námsskeium þeim, sem haldin eru á vegum sambandsins. Ungmennafélag Mýrahrepps í Dýrafirði hélt skemtisamkomu að Mýrum, þar í sveit, 20. ágúst, s. 1. Hófst hún með guðsþjónustu þar ú staðnum (Sigtr. Guðlaugss.). Kappslátt þreyttu 5 ménn á 200 metra starengi. Bjarni ívarsson ritari fjórðungssambandsins varð lilutskarpastur, sló blettinn á 7 mín. og 25 sek., hinn siðasti á 9 mín. og 58 sek., en geta má þess, að hann gal ekki notað silt eigið orf og var illa undirbúinn. priggja manna nefnd dæmdi hin fljótasta besta sláttumann- inn og var honum heitið vandað orf að verðlaunum. Fé lil verðlauna hafði fé- laginu borist frá Sigtryggi presti Guð- laugssyni að Núpi. Auk þessa fóru fram á samkomurini ræðuhöld, söngur, hlaup, stökk, ísl. glíma og flutt kvæði um Dýra- fjörð, er síra Sigtryggur hafði sent fé- laginu og tileinkað því. FcIiigsi>rnetsiniÖjan.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.