Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1919, Síða 5

Skinfaxi - 01.01.1919, Síða 5
SKINFAXI 5 hversu mikla holla næringu blóðið get- ur fengið í hreinu lofti, þá mundu þeir nota marga tómstund til þess að viða að sér sem allra mestu af þessari ó- sviknu vöru. Sumir halda, að það sé veikleika vottur, ef maður másar svo á hlaupum, að það heyrist langt til. En svo er ekki. J>vi meiru sem maður getur andað að sér og frá í senn, því öflugri eru lungun. Hjartað styrkist einnig betur af hlaupi, heldur en af „baræfingum", hryggspennu eða lyftingum, því að þá liggur manni oft við að halda niðri í sér andanum. En þó að hjartað slái stundum hart að hlaupinu loknu, þá er ekkert að óttast, ef sláttur þess er reglu- bundinn. Til þess að svitna, er hægasta ráðið að hlaupa dálítinn spöl. En svitna skyldi maður á hverjum degi, og hljóti maður það ekki af þvi starfi, er maður stundar, þá á maður að hlaupa sig sveitt- ann og taka sér laug á eftir og dugandi húðstrokur. þetta veitir hörundinu herslu og gerir mann næstum ónæman fyrir ofkælingu og smitandi sjúkdóm- um. Með svitanum hverfa og úr líkam- anum ýms skaðvæn efni og sjúkdóms- angar á éðlilegan liátt, samtímis því, að maður losnar við þarflausa og óholla fitu. Sumir halda að svitagjarnir menn séu veiklaðir, en greið svitaútrásbervott um hrausta og starfshæfa húð og góða hörundsrækt — helbrigði, pað er mesta furða hvað daglegur' hlaupasprettur getur læknað lystarleysi, hægðateppu o. fl. það er auðvelt að iðka hlaup alt árið, hvort sem heitt er eða kalt í veðri, snjó- koma eða sólskin. Maður getur hlaupið hvar sem er og hvenær sem er. En þeirra vegna, sem kunna að afsaka sig með þvi, að þeir hafi ekki tíma né tækifæri til að hlaupa sprett daglega, einkum i skammdeginu, skal eg, sem á tiltölulega annríkt, segja frá aðferð minni. Eg er bundinn allan daginn við andlegt starf inni i miðjum höfuðstaðnum, en bý yst í jaðri lians. pegar skrifstofunni er lokað á kvöldin, sting eg flibbanum og bindinu í vasa minn, til þess að herða ekki að hálsinum, sem gildnar á hlaup- inu, bretti upp kragann á yfirhöfninni, held á húfunni i hendinni og hleyp síð- an hvíldarlaust heim. Eg afklæði mig kófsveittur, bregð mér i baðkerið og helli nokkrum gusurn af köldu vatni yfir mig og strýk síðan rækilega húðina og fer í hrein föt. Og á eftir er egsvo léttur í lund og með góða samvisku af að hafa rækt boðorð heilsufræðinnar svo sæmilega. Eg var í æsku kvellisjúk- ur væskill, en síðan eg fór að iðka hlaup með fullri festu og alvöru, hefi eg aldrei kent nokkurs meins. Fyrir nokkrum ár- um gekk illkynjuð inflúensa, og þegar eg tók eftir því, eitt sunnudagskvöld, að eg hafði tekið veikina, þá fékk eg mér ærlegan svitasprett og varð hennar ekki var eftir það. (I. P. Muller.) Gildi íþróttanna. Eftir ólaf Sveinsson. ------ (Niðurl.) Hin þroskandi áhrif íþróttanna á s á 1- i n a eru margs konar. pau stafa, eins og líkamlegu áhrifin, flest frá æfingun- um. — pað hefir litla þýðingu fyrir í- þróttamanninn að æfa hugsunarlaust. Tilhlaupin við köst og stökk, brögð eða varnir i glímu; allir tilburðir líkamans við íþróttina, hver sem hún er, verða að vera sem hagkvæmastir, hraðastir, mýkstir. En þetta fæst að eins með iðk- un, þar sem hugsunin fylgir hverri hreyfingu, — stjórnar hverri hreyfingu.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.