Skinfaxi - 01.07.1920, Blaðsíða 7
SKINFAXI
31
mest gagn, hver á sinn hátt og í hvaða
stööu sem er.
Eins og kunnugt er, höfum vér Islend-
ingar ófullkomnari skóla og úreltari yfir-
leitt, en flestar aörar þjóöir. Eitt af mörgu
sem ábótavant er viö skólana hjá olckur
er þaö, hvaö litiö far þeir gera sér um aö
vinna í sem nánustu sambandi viö aörar
stofnanir þjóðfélagsins, svo sem heimilin.
Það gefur að skilja, hve þýðingarmikið
það er fyrir kennarann að þekkja til hlýt-
ar umhverfi barnanna, svo sem heimilis-
líf þeirra, hvaða áhrifum þau verða fyrir
]iar, og svo utan heimilanna í samneyti við
önnur börn og fullorðið fólk. Oft er alveg
óhugsandi fyrir kennarann að ná tökum
á hverjum nemanda nema með því að
kynna sér umhverfi hans og áhrif þess á
lmgsanir og athafnir. Þvi að það er sann-
leikur, aö „hver dregur dám af sínum
sessuriaut". — Uppeldisfræöingar og kenn-
arar vestra hafa vel skilið þetta, og ekki
hvað síst kennararnir í Gary. Þeir láta sér
umhugað unt að vinna í sem nánustu sam-
bandi við heimilin og kirkjusöfnuðina i
borginni, svo að ekkert fari i súginn,
hvorki fé né annað. Því að öll öfl sem
vinna að ])ví að þroska ungu kynslóðina
og íbúana í heild sinni, virina saman og í
samræmi hvert við annað.
Öllu skólanáminu er lika kornið ]>annig
fyrir og rekið á þann hátt, að skólarnir eru
mjög aðlaðandi fyrir börnin, svo að þau
eru áfram um að sækja þá. Þeir eru ann-
að heimili þeirra, þar sem þau dvelja á
meðan foreldrar þeirra vinna ef til vill
anriarstaðar en heima. í skólunum hafa
þau eins mikinn áhuga og finst eins árið-
andi að leysa hvert verk sem þau gera, eins
vel af hendi og þau væru að gera það fyr-
ir foreldra sína.
Hver deild veit ávalt hvað hinar eru að
gera, því að börnin mætast ávalt í fata-
lierberginu, eða þegar þau eru að skifta
um kenslustofu.
Það sem einkum hefir átt góðan þátt í
þvi að skapa hinn góða anda sem ríkir yfir
skólunum í Gary, eru samkomur í skólun-
um, bekkja- og skólaheimsóknir og smíð-
arnar.
Það skal tekið fram, að við hvern skóla
er stór samkomusalur, þar sem samkomur
og málfundir eru haldnir. Þar læra börnin
að stjórna og koina saman á málfuridum
og öðrum samkomum. Einnig eru oft sýnd-
ir þar smáleikir og skuggamyndir. Eins
og áður er drepið á, eru börnin oft látin
laeimsækja bekki á vixl og hlusta á kenslu
])ar. Á smíðastofunum og í smiðjunum búa
nemendur til ýms áhöld handa skólanum
og gera við það sem úr lagi fer. — Alt
þetta stuölar mjög að þvi að gera skólalíf-
ið bæði skemtilegt og um leið nytsamt.
Við skólana í Gary kjósa nemendur
nefnd úr sínum flokki. Á hún' að halda uppi
heiðri þeirra og skólans i heild sinni. Skóla-
börnin starfa lika mikið að því að halda
skólanum og borginni þrifalegri. Það gera
þau mest með þvi að hjálpa lækni skólaris.
Þau hafa sýnt mjög rnikinn áhuga í þessu
og hefir því orðið furðu mikið ágengt i
því að hindra og verja skólana fyrir næm-
um sjúkdómum. Þetta hefir þeim tekist
svo vel, að smitandi veiki er miklu al-
gengari á meöal barna þeirra sem eru irin-
an við skólaaldur, en þeirra, sem ganga á
skólana, en hið gagnstæöa er vanalegt,
eins og gefur að skilja, þar sem svo mörg
börn koma samari og er sýkingarhættan
miklu meiri ef um nokkra kvilla er að
ræða.
Enginn slcyldi halda, að heilbrigðislög-
um og reglum sé ])röngvað upp á börnin,
heldur eru lögin útskýrð fyrir þeim. Þeim
er sagt blátt áfram hvað lög eru, til hvers
þau væru sarnin og hver sé tilgangur
þeirra, riefnilega hvernig þau geti hindrað
útbreiðslu næmra sjúkdóma og allskonar
kvilla. í eölisfræöis- og matreiðslustundun-
um læra börnin frumatriði gerla- og líf-