Skinfaxi - 15.07.1923, Qupperneq 7
SKINFAXl
47
og Halldór Snorrason gerði Haraldi konungi
forðum: »Þó að stjórn Spánverja hafi get-
að kúgað Alþingi vort svo, þá skal ég
hundur heita, ef nokkur dropi af vínum
þeirra kemur inn fyrir varir mínar«. —
Nú á að skera upp herör og eggja
þjóðina gegn þessu vítishorni. Það á
hver heimilisfaðir að gera á sínu
heimili í landinu. Það á hvert félag að
gera innan sinna takmarka. Það vil ég nú
hér með gera á þessum stað, í heyranda
hljóði, og get lofað því fyrstur að neyta
þeirra eigi. Það á hver Islendingur að gera,
svo að Spánverjar verði að gera annað
af tvennu: að flytja vín sín burt úr landi
eða — hella þeim í hálm niður.
Kolb. Högnason.
Kollafirði.
Fréttir
af U. M. F. í héraðssambandinu
»Skarphéðinn«.
U. M. F. Biskupstungna. Helstu störf
þess á árinu voru:
Fundarhöld, þar sem rædd voru og til
lykta leidd áhugamál félagsins, ennfremur
voru rædd ýms alþýðleg efni.
4 fræðandi fyrirlestrar voru haldnir fyrir
félagsmenn.
Af íþróttum, sem voru iðkaðar má nefna
glímur, stöklc, hlaup og köst.
Aðrar framkvæmdir félagsins eru hesi-
húsbygging á fundarstaðnum í félagi við
hreppsfélagið. — Jólagjafir voru gefnar fá-
tæku fólki. Keypt 26 skíði handa félags-
mönnum.
LJ. M. F. Hrunamanna. Félagið er
stofnað 1908 og teiur 64 félaga alls, þar
af nokkrir aukafélagar. Gekk í S. U. M.
F. í. 1911.
Umræðufundir voru haldnir 7 á þessu
ári. — Fyrirlestrar haldnir af skólastjóra
Magnúsi Helgasyni: Um Kristófer Bruun,
og forstjóra Helga Valtýssyni: Um járn-
brautarmálið.
Félagið gaf út 8 tölublöð á árinu af
félagsblaðinu » Njáli«.
Hinn nýi tilraunareitur félagsins var
undirbúinn til skógræktar. Stærð hans er
400 m2. I hann voru gróðursettar 100
trjáplöntur, var það reyniviður, birki og
ribs.
Kappglíma var háð um verðlaunapening
og auk þess haldnar 4 skemtanir á árinu.
Haldin handavinnusýning í Hruna. Voru
þar sýndir 34 munir af 25 sýnendum.
Þremur börnunum voru veitt verðlaun á
sýningunni. Jólatré voru gefin til þriggja
heimila. Innan þessa félags starfar tóbaks-
bindindisflokkur og íþróttafélag. Ennfrem-
ur hefir félagið umsjón með lestrarfélagi
Hrunasóknar.
U. M. F. Laugardœla. Félagar eru alls
36. Á þessu ári voru haldnir 7 fundir. Fé-
lagið vantar fundarhús. Félagið lét halda
fjóra fyrirlestra alþýðlegs efnis.
Af íþróttum iðkuðu félagsmenn glímur,
hlaup og stökk.
Félagið hefir gróðursett í trjáreiti á 6
bæjum alls. Stærð þeirra allra er 180 m2.
Félagið á húsbyggingarsjóð 348 kr.,
ennfremur bókasafn og girðingu.
U. M. F. Sandvíkurhrepps. Félagið tel-
ur alls 35 félagsmenn og hefir á árinu
haldið 6 fundi og voru algengustu um-
ræðuefni áhugamál Ungmennafélaganna
svo sem íþróttir, skógrækt, skóla- og menta-
mál o. fl. Einn fyrirlestur var haldinn.
Af íþróttum voru glímur og hlaup iðk-
uð einu sinni í viku. Félagið hefir haft í
sinni þjónustu íþróttakennara. Það hefir
ennfremur keypt ýms íþróttaáhöld.
Félagið styrkir lestrarfélagið með fjár-
framlögum. Það hefir einnig unnið að út-
græðslu erfðafestulands, sem það á og
kostað til viðhalds á fundarhúsi sínu.
Ennfremur veitt tveim mönnum styrk til
að sækja íþróttamótið við Þjórsárbrú.
U. M. F. Asahrepps. Félagsmenn eru