Skinfaxi - 15.07.1923, Blaðsíða 8
48
SKINFAXI
alls 29. Af starfsemi félagsins má nefna
fundarhöld. Voru þar rædd ýms málefni
ásamt áhugamálefnum félagsins.
Iþróttir hafa verið iðkaðar og einn fé-
lagi sendur á íþróttanámskeið í Reykja-
vík. Félagið hefir afgirtan reit og eru í
hann gróðursettar nokkrar trjátegundir
sem þrífast vel.
Félagið gekst fyrir stofnun minningar-
sjóðs eftir séra Ólaf prest á Kálfholti og
frú hans Þórunni Ólafsdóttur.
U. M. F. *Ingólfurt-. Félagar eru alls
í þessu félagi 26.
Fundir voru haldnir 8 og helstu um-
ræðuefni voru íþróttir og trjárækt.
Einn fyrirlestur var haldinn um alþýðu-
fræðslu fyr og nú. Félagið á trjáreit og
var starfað að því að viðhalda honum.
Félagið hefir á árinu styrkt þrjú heimili
með vinnu [34 dagsverkum] og peninga-
framlagi [200 kr.] í tilefni af veikindum
þar.
U. M. F. ■»Njáll'!. Félagsmenn eru 30
að tölu og hefir félagið haldið 6 fundi í
húsi félagsins. Voru þar einnig haldnir 3
fyrirlestrar, einn um uppeldismál U. M. F.
og starfsemi þeirra.
Af íþróttum var iðkað: glímur, sund,
hlaup, reiptog og skautahlaup.
Félagið sendi fjóra menn á íþróttanám-
skeiðið að Þjórsártúni.
Félagið hefir áður stofnað sjúkrasamlag
og á þessu ári styrkt það með því að
halda hlutaveltu til ágóða fyrir það. Inn-
an félagsins er stofnaður sérstakur söng-
flokkur.
Félagið bendir á að æskilegt væri á
íþróttamótum að veita fleiri verðlaun og
viðurkenningar heldur en tíðkast venjulega,
til þess að auka áhuga manna fyrir þátt-
töku í mótunum.
Prentsm. Acta h.f. — 1923
Bókasöfnin.
Eitt af hlutverkum Ungmennafélaganna,
þar sem þau eru, er að koma á fót og
starfrækja félagsbókasöfn, eða þó helst
héraðsbókasöfn. Þau eiga að vera athvarf
námfúsra unglinga og stoð og stytta þeirra
við sjálfsnám. Og það mun reynast hollara
og þróttugra til þrifa en hálfmentunarslikja
sem fengin er við tímanám í Reykjavík.
En það er meiri vandi en vegsemd að
stofna og stunda slík bókasöfn. Bókavalið
er oftast erfiðasta viðfangsefnið. Menn
kaupa bókastofninn og bæta við án þess
að leita hollra ráða góðra manna og sann-
fróðra, en slíkt er nauðsýnlegt. Mér dett-
ur í hug dæmi. í sveitabókasafni, sem ég
þekti vel, stóðu hlið við hlið Flóra íslands,
Kapitóla og Iíugsunarfræði eftir E. Briem.
En það er ekki nóg að finna að, það
þarf að reyna að bæta úr þessu. Nú vil
ég stinga upp á því við lesendur Skinfaxa
að þeir — hver einasti —, sendi blaðinu
nöfn [og nöfn höf. ef þektir eru] á a. m.
k. tíu bestu bókunum, sem þeir þekkja
og séu þær á íslensku eða einhverju norð-
urlanda málanna. Ef þessu yrði sint er
auðvelt að fá aðstoð góðra manna til að
vinsa úr tillögunum, og mætti með þessu
móti fá skrá er gæti orðið bæði félögum
og einstökum mönnum til stuðnings við
bókaval.
Þetta er nauðsynjamál, og þess vegna er
því nú hreyft. En vel má vera að einhver
gæti fundið, betra ráð, og væri þá drengi-
lega gert að benda Skinfaxa á það.
G. G.
Látinn er hér í bænum Morten Hansen
skólastjóri, 67 ára að aldri. Starfsdagur
hans var orðinn langur, eflaust lengri en
nokkurs samtíðarmanns í kennarastett. Og
hann lifði óskiftur í starfi sínu. Sammála
munu vinir hans um það, að því betur
sem menn kyntust honum, því meira hlutu
þeir að meta hann. €L