Skinfaxi - 01.02.1924, Side 4
12
SKINFAXI
SKINFAXI
Úlgefandi: Samb. Ungmennafél. Islands
12 blöð á ári. VerS 3 krónur. Gjalddagi
fyrir 1. júlí.
Ritsjórn, afgreiSsla og innheimta: Skin -
faxi Reykjavik Pósthólf 516.
bandsins höfðu aukist á árinu um ca.
1400,00 kr.
2. íþróttamál. Samþykt var:
I. „Að iþróttanámsskeið verði hald-
ið að pjórsártúni í nóvembermánuði á
komandi hausti, og ef tiltækilegt sýndist,
að halda ann,að í febrúarbyrjun næst-
lcomandi.
II. „að halcla íþróttamót liér að
p j órsái'túni á komandi vori.
III. „Að fjölgað verði kappglímu-
verðlaunum, og að það félag, sem flesta
vinninga fær, talið í stigum, fái skýr-
teini íiö verðlaunum.
IV. „Að athuga hvort ekki muni til-
tækilegt, að byggja hér (þ. e. að pjórs-
ártúni) sundlaug, og að sund verði
framvegis meðal þeirra íþrótta, sem
kept er í, á iþróttamótum sambandsins.“
3. Fyrirlestramál. petta samþykt:
„pingið samþykkir, að stjórnin beiti
sér fyrir að fá samband U- M. F. 1. til
að senda a. m. k. einn fyrirlesara um
sambandssvæðið á heppilegum tíma.
Ennfremur sendi liéraðssambandið fyr-
irlesara um héraðssvæðið, þannig, að
Árnesingur fari um Rangárvallasýslu og
Rangæingur um Árnessýslu, einnig á
þeim tima, sem félögunum er hentug-
ur.“
4. Iðnaðarmál. Samþykt var:
I. „pingið hvetur til að meira verði
gert að iðnsýningum en hingað til, og
æskir þess, að fulltrúar þeir, sem hér
eru mættir, reyni að hafa sem mest
áhrif, hver í sínu félagi, að það stofni
til iðnsýningar; og héraðsstjórnin und-
irbúi svo i náinni framtið iðnsýningu
á samljandssvæðinu.
II. pingið skorar á félög innan sam-
bandsins, að þau sendi nemendur á fyr-
irhugað vefnaðarnámsskeið, sem lialdið
verður á komanda hausti i Reykjavik.
Veitt skal úr sjóði „Skarphéðiiis“ alt að
75 kr. hverjum nemanda; þó skal ekki
veittur styrkur fleirum nemendum en
fjórum úr hverri sýslu- Skylt skal og
þeim, er njóta styrksins, að kenna aftur
vefnað iit frá sér, er heim kemur.
III. „pingið heimilar héraðsstjórn-
inni að veita U. M. F. Eyrarbakka eða
U. M. F. Stokkseyrar alt að 150,00 styrk
til heimilisiðnaðarnámsskeiðs i þorpun-
um. Skal mönnum úr öðrum félögum
á héraðssvæðinu gefinn kostur á að
sækja það námsskeið.“
5. Héraðsskólamálið. Samþykt var:
I- „Héraðsþingið ályktar áð skora á
félögin á héraðssvæðinu að taka liéraðs-
skólamál Sunnlendinga lil sem ræki-
legastrar yfirvegunar, og vinna svo
kröftuglega, sem þau frekast sjá sér
fært, að skjótum framgangi málsins.
II. „Héraðsþingið samþykkir, að
láta helming ágóðans af næsta iþrótta-
móti „Skarphéðins“ ganga til hins fyrir-
Iiugaða héraðsskóla Sunnlendinga.“
6. Bindindismál. petta samþykt:
„Héraðsþingið litur svo á, að heiður
ungmennafélaganna sé mjög undir því
lcominn, að félagsmenn ræki samvisku
samlega drengskaparheitið í skuldbind-
ingu U. M. F. í. pess vegna skorar þing-
ið eindregið og alvarlega á félögin, hvcrt
einstakt, að ganga ríkt og rækilcga eftir
því, að félagsmenn brjóti ekki bindind-
isheitið."