Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1929, Side 9

Skinfaxi - 01.02.1929, Side 9
SKINFAXI 25 Landssýningin i Björgvin. Framh. Þær þrjár deildirnar, sem enn er ósagt frá höfðu einnig svo margt til síns ágætis að ekki ber að láta ógetið enda þótt inni- hald þeirra væri að sumu leyti fjær okkar almennu högum, en hinna, sem áður er frá sagt. — Samgöngudeildin tók yfir allt það sem að umferð og samgöngum lýtur, og þó langtum fleira. Flestöll um- ferðartæki og allskonar hjálparmeðul til slíkra fram- kvæmda, ef svo mætti orða, gat þar að líta, enda var sú deild í fieirum byggingum og stöðum á sýningar- svæðinu. — Það sem einna mest gekk þar í augu voru járnbrausarlestir tvær (að vísu ekki ineð mörgum drátt- arvögnum). Voru til samanburðar settar samhliða fyrsta járnbrautarlestin, sem gekk á ríkisbrautunum norsku og svo sú nýjasta og best fullkomna. Gamla lestin með sínum gufuvagni, sem eflaust 'þótti undraverk á sinni tíö, minti nú helst á gerðarlegt barnaleikfang, í sarnan- burði við þá tröllauknu nútíma eimreið,. sem æðir eins og í jötunmóði upp og yfir háfjöllin með „snjóplóginn" fyrir, sem þeytir djúpfenninu eins og dufti, og sópar að síðustu brautina. — Vélar af mörgum tegundum og stærðum voru og alhnikill flokkur. Mestur hluti þeirra voru ýmsar „mótor“véiar, hinsvegar líka gufuvélar, raf- orku o. s. frv. — Einn sýningarskálinn var eingöngu fyiir bifreiðar af ýmsum gerðum, og gerist engin þörf á 'að lýsa. Björgunarbátar fimm, hin allra mætilegustu skip, flutu inni á Álfreksósi. (Því að alla leið milli vatn- anna náði sýningarlandið, ef skemtanasvæðið var með talið). Nokkrir smábátar aðrir, siglinga- og vél- bátar voru einnig til sýnis. Samgöngur bæði til sjávar og lands voru útskýrðar með fjölda mynda og móta, bæði táknmynda og veruleika. Af skipum og ýmsum öðrum mannvirkjum voru myndlíki („model“) og margs- Samgöngu deildin.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.