Skinfaxi - 01.11.1962, Síða 6
Og enn er ungmennafélagshreyfingin að
verki sem betur fer.
Nú er hún svo voldug, að hún heldur
landsmót við mikinn húsakost og leik-
vanga í sama hreppnum og litla, laxdælska
ungmennafélagið varð fyrir 100 árum að
gera sér að góðu beitarhús til fundar-
halda.
Og nú er hægt undir venjulegum kring-
umstæðum að komast til móts sem þessa
á einum degi úr öllum landshlutum. Það
ferðalag tekur litlu lengri tíma en ferð í
nágrannasveit fyrr á tíðum.
Lofum hamingjuna fyrir framfarirnar
og leggjum okkur fram til að spinna gæfu-
þráð úr efni þeirra.
Skyldi nú, þegar liér er komið, íslandi
vera minni þörf á ungmennafélagshreyf-
ingunni en fyrrum ? Ég spyr, en svara sam-
stundis ákveðið neitandi.
Nú þarfnast Island áreiðanlega anda og
starfsemi ungmennafélaganna, jafnvel
fremur en nokkru sinni áður, — við að
spinna gæfuþráð sinn.
Hvers vegna? Ég skal nefna nokkur at-
riði þessari staðhæfingu til sönnunar:
Yfir heiminn er skollin atómöld. Henni
fylgir mikill tæknimáttur, en jafnframt
mikill hugarkuldi og minnkandi ræktun
þeirra vitsmuna, sem við brjóstið eru
kenndir.
Maðurinn er lífi gædd vitsmunavera —
í því er gildi hans fólgið og hæfileiki til að
njóta tilverunnar.
Hann þarf að gæta þess, að láta ekki hin
dauðu öfl tækninnar eyðileggja að meira
eða minna leyti lífið í sér sem manni og
ræktun þess.
Æskunni veitir sannarlega ekki af hug-
Goðafoss
sjónafélagsskap til mótvægis vélrænunni.
Áhrif tækninnar og þjónustusemi henn-
ar þarf að göfga með hugsjónastarfi.
Islenzk þjóðrækni er í mikilli hættu.
Einangrun íslands er að mestu leyti horf-
in staðreynd. Hún var oft bagaleg, — en
hún hafði þann kost að vera okkar fá-
mennu þjóð nokkur sjáifstæðisvörn.
Þjóðrækni ungmennafélaganna hefur
vaxandi hlutverki að gegna við að vinna
að því, að íslendingar haldi hópinn í þeirra
orða víðtækustu og beztu merkingu, — og
týni sér ekki í þjóðahafið.
Islenzk tunga þarfnast umhyggju, ef
lindir hennar eiga ekki að blandast annar-
legu aðrennsli og gruggast af aðfoki frá
öðrum tungumálum.
Tungan speglar og geymir lífssannindi
þau, er þjóðin hefur tileinkað sér á göngu
sinni gegnum liðnar aldir. Hún er einn
allra þýðingarmesti arfur fyrir þjóðernið.
Æskan tekur jafnan við þeim arfi — oghún
er réttur aðili til að hafa samtök um að
6
SKINFAXI