Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1962, Side 7

Skinfaxi - 01.11.1962, Side 7
Þingeyingar glíma í Vaglaskógi vernda hann. Geri hún það, — gera hinir eldri það. Vélvæðingin léttir erfiði af fólkinu. Vinnudagurinn styttist og tómstundum fjölgar. Þjóðin þarf að læra að hagnýta vel tómstundirnar, — „verja tíma og kröftum rétt“. Þetta er vaxandi viðfangsefni. Iþróttirnar eru ágætar fyrir æskuna til að koma í staðinn fyrir áreynslu vinnunn- ar. Starfsemi ungmennafélaganna í því sr.mbandi er ómetanleg, og ennþá brýnni en hún áður var. Þetta mikla íþróttamót er glæsilegur vottur um íþróttastarfsemina, ekki sízt þegar líka er á það litið, að á bak við í- þróttafólkið, sem hér hefur komið fram, stendur væntanlega heima fyrir mikið fjöl- nrenni, sem er vel íþróttum búið. Starfsíþróttirnar, sem má telja að fyrir stuttu séu komnar til sögunnar, eru merki- legur þáttur fyrir ungmennafélögin. Það er ekki lítilsvert að gera iðjuna að leik og viðurkenndri íþrótt'. Samkomumenningu þjóðarinnar er mjög ábótavant við núverandi aðstæður. Þar eru ungmennafélögin réttur aðili til siðbóta. Þar eiga þau að láta til sín taka. Svona mætti lengi halda áfram að telja upp verkefni, sem ungmennafélagshreyf- ingin hefur í dag, — verkefni, sem gera hana ómetanlega mikilsverða fyrir Island. Æska landsins er á hverjum tíma dýr- asta von þess. Æskan á óeydd tækifæri sín, en ekki hinir eldri. Hún á leikinn. Þetta eru hin miklu forréttindi hennar. Þið, sem eruð ung, þurfið í öllum bæn- um að gera ykkur grein fyrir því, hve þetta eru dásamleg og dýrmæt forréttindi og hve Island væntir mikils af ykkur. Þið, sem nú eruð ung, eigið gott vegna liinna miklu framfara, sem orðnar eru nú þegar og standa til boða, þótt atómöldin skapi líka vandamál, sem ekki voru áður. Tækifæri þau, er tilveran býður ungu fóllci í dag, eru miklu meiri og fjölbreytt- ari en nokkru sinni fyrr. Óskar Wilde — hinn mikli líkingasnill- ingur — sagði, að æskan væri öfundsverð- ust af því, að henni féllu jafnan í skaut „nýnæmi tilverunnar". Fullyrða má, að einmitt „nýnæmi tilver- unnar“ — þ. e. hið áður óþekkta — hafi aldrei verið meiri og margvíslegri og girni- legri til fróðleiks og ávinnings en nú. Æsk- an því aldrei í raun og veru öfundsverðari. Ég óska ykkur af heilum huga, ungu konur og ungu menn, til hamingju með öll hin miklu „nýnæmi tilverunnar“, sem ykk- ur bjóðast, skinfaxi 7

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.