Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1962, Side 23

Skinfaxi - 01.11.1962, Side 23
merkilegt og mikilfenglegt sem það er, hefur tilverurétt, nema stefna þess sé að draga úr þjáningunni. Hitt er alltaf undir hælinn lagt í vorum heimi, hvernig til tekst. En þó að sagan sé hér með sögð, myndi það sennilega vera talið til undanbragða, ef ég léti hér staðar numið, og skal ég því auka svolitlu við: Iiéraðssamband ungmennafélaga í Snæ- fellsness- og Hnappadalssýslu var stofnað 24. sept. 1922, í samkomuhúsinu að Fá- skrúðarbakka í Miklaholtshreppi og er því lítið eitt komið á fyrsta árið yfir fertugt. Tildrög stofnunarinnar voru þau, að fjórð- ungssamböndin voru lögð niður um eða eftir 1920, að ég ætla. Og á síðasta fjórð- Ungsþingi Vestfirðingafjórðungs voru gerðar ráðstafanir til að stofnuð væru hér- aðasambönd, þar sem þau voru ekki til staðar, og ég held, að það hafi verið það fjórðungsþing, sem skipaði þrjá menn hér í héraði vorið 1922 til að undirbúa og vinna að stofnun héraðssambands, er næði yfir Snæfellsness- og Hnappadalssýslur. Þessir þn'r menn voru: Guðmundur Illugason, þá 1 Yztu-Görðum, Sveinbjörn Jónsson, Snorrastöðum, og Bragi Jónsson, þá í Hof- görðum. Þeir komu saman um sumarið á skemmtun að Fáskrúðarbakka. Ungmenna- félagið Dagsbrún í Miklaholtshreppi hafði þá um nokkurt skeið haldið eina skemmt- lln á sumri hverju. Ekki laugardagskvölds ball eins og nú er tíðast, heldur kom fólk- saman á hásunnudaginn í blessaðri birt- unni og sólskininu, og öllum dansi xar lok- áður en sól var af lofti. Á einni slíkri skemmtun komu þremenningarnir saman, °g fundarstaðurinn var móarnir í brekk- Unni ofan við gamla samkomuhúsið á Fá- skrúðarbakka, og skrifborðið hnéð á Guð- mundi Ulugasyni. Þarna gerðu þeir áætlun um stofnun héraðssambandsins og sömdu frumdrög að lögum og reglum. Um réttirn- ar ferðaðist svo Stefán Jónsson skólastjóri í Stykkishólmi, nú námsstjóri, eitthvað um hér sunnanfjalls og ræddi við ung- mennafélaga um málið. Og 24. sept. 1922 komu saman að Fáskrúðarbakka fulltrúar frá ungmennafélögunum: Eldborg í Kolbeinsstaðahreppi, Dagsbrún 1 Miklaholtshreppi og Staðarsveitar í Staðarsveit. Fleiri ungmennafélög held ég að hafi þá ekki verið til hér á Snæfellsnesi. Á þessum fundi var héraðssamband ungmennafélaga í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu formlega stofnað og kos- in stjórn. Og í stjórnina voru valdir sömu menn og áður skipuðu undirbúningsnefnd- ina: Guðm. Illugason formaður, Svein- björn Jónsson ritari og Bragi Jónsson gjaldkeri. Það ræður að líkum, að svona fámennt samband fátækra félaga gat ekki haft mikil umsvif eða fjárfrekar framkvæmdir með höndum. Fyrsta árgjald til sambands- ins var 15 aurar af hverjum félaga, hækk- aði í 50 aura næstu tíu ár, en lækkaði aft- ur í 25 aura og var svo um nokkurt skeið. Yfirleitt hefur sambandið aldrei seilzt djúpt ofan í vasa félaga sinna. Þó að litlir væru fjármunirnir, var sam- bandið þó að reyna að sýna lit á fram- kvæmd þeirra mála, sem það áleit að æsku lýðsfélögum stæði næst að inna af hönd- um. Stóð meðal annars fyrir árlegm sund- námskeiðum í Kolviðraneslaug. Hafði U. M.F. Eldborg hafðið það starf fyrir nokkr- um árum. Grófu félagar Eldborgar og s<IN FAX I 23

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.