Skinfaxi - 01.11.1962, Side 25
um félögum sunnan og norðan fjallgarðs-
ins. En þá voru risin upp ungmennafélög
í flestum sveitum og kauptúnum sýslunn-
ar. Á þeim fundi var endurvakið héraðs-
samband ungmennafélaga í Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu, nú skammstafað
U.S.H.
Voru að vísu ekki nema 5 félög, sem
stóðu að endurreisninni í byrjun, en hin
komu smám saman, og að fám árum liðn-
um voni öll ungmennafélög á Snæfellsnesi
komin í sambandið.
Daníel Ágústínusson hvarf úr héraði
þetta sama ár, en hann sleppti ekki hendi
sinni af liéraðssambandinu fyrir því, held-
ur var sífellt reiðubúinn til aðstoðar, leið-
beiningar og hvatningar, meðan endur-
vakningin var — ef svo mætti að orði
komast — í reifum, og þökk sé honum fyr-
ir það.
Með fjölgun félaga og vaxandi lífi þeirra
óx héraðssambandinu fiskur um hrygg, og
á landsmót U.M.F.Í. í Haukadal 1940 fóru
íþróttamenn af Snæfellsnesi. Síðan hefur
íþróttafólk héraðsins sótt landsmótin, ut-
an einu sinni, að ég ætla, 1946 — og stund-
um hlotið mikinn vinning, þó aldrei hafi
sambandið unnið landsmótin. Og á héraðs-
mótin undanfarin ár hefur komið sístækk-
andi hópur af sæmilega æfðu íþróttafólki.
Eins og ég gat um áðan hafa bindindis-
og íþróttamál verið dagskráratriði á flest-
um fundum sambandsins. I bindindismál-
unum hefur gengið upp og ofan, því mið-
ur, þó hafa leikmót og héraðsmót sam-
bandsins verið nær því alveg laus við allar
óeirðir sökum ölvunar, og stundum ekki
séð vín á manni.
Iþróttamálin hafa heldur hnikazt til
réttrar áttar, og einn formannanna, Bjarni
Andrésson, kenndi sjálfur víðs vegar um
héraðið. En 1951 réðist Sigurður Ilelgason
íþróttakennari til barnaskólans í Stykk-
ishólmi. Hann var bráðlega valinn íþrótta-
ráðunautur sambandsins, og síðan má
telja, að afrekum og þátttöku í íþróttum
hafi fleygt fram. Mátti runar ganga að
því vísu, að efniviðurinn væri til hér, ekki
síður en annars staðar, en Sigurði hefur
tekizt með prýði að smíða úr þeim efnivið,
án þess að reisa héraðssambandinu hurð-
arás um öxl fjárhagslega.
Héraðssambandið hefur aldrei verið
ríkt, enda lélegt til skattheimtunnar, eins
og áður er getið. Þó safnaðist svolítið, þeg-
ar saman kom með fjölgun félaga. Héraðs-
mót, sem háð hafa verið árlega síðan 1939,
hafa og verið nokkur tekjulind. Drengja-
mót hafa einnig verið haldin hin síðari ár,
en mjög lítið hefur verið um beinar dans-
skemmtanir á vegum sambandsins.
Flest héraðsmótin síðan 1930 hafa byrj-
að með guðsþjónustu, og hafa prestar hér-
aðsins verið sambandinu mjög velviljaðir,
ævinlega prédikað endurgjaldslaust, og
jafnvel talið sér veitt í að fá að tala yfir
unga fólkinu í leikbyrjun. Einu sinni pré-
dikaði þáverandi herra biskup Sigurgeir
Sigurðsson.
Héraðsþing hefur aldrei fallið niður síð-
an 1939. Fyrst stóð það aðeins einn dag,
og greiddi sambandið kostnaðinn, en nú í
nokkur ár hafa félögin séð um móttöku
fulltrúa á víxl, af hinni mestu rausn. Hafa
héraðsþingin síðan byrjað síðari hluta
laugardags, og fulltrúar notið næsturgist-
ingar í heimasveit hlutaðeigandi ung-
mennafélags. Jafnan hefur fulltrúum og
stundum fleiri gestum berið boðið tii
skinfaxi
25