Skinfaxi - 01.11.1962, Qupperneq 27
landi og lýð til heiðurs og sóma.“ Fyrri
hluti vona þeirra hefur rætzt. Það er risið
upp félag í hverri sveit, og þau félög hafa
sameinazt í héraðssambandinu. 1 einni
sveit — Fróðárhreppi — hefur félagið þó
lagzt niður aftur vegna mannfæðar. Um
síðari hlutann ber mér ekki að dæma, en
ég vona, að þó heiðurinn sé máske ekki
rishár, þá sé vansæmdin engin.
Ég hef nú sagt sögu Héraðssambands
ungmennafélaga í Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu í stórum dráttum, og
væri nú gaman að geta haldið áfram og
sagt sögu næstu 40 ára. En: „Lítið sjáum
aftur og ekki fram.“ Verður það því að
bíða. Stundum getur líka verið líknin mest
að sjá ekki fram. En ég er nú svo bjart-
sýnn að trúa því, að það væri ekki í þessu
tilfelli. Ég er þó ekki maður til að spá um
framtíðina, en óskir er öllum fært að bera
fram. Og að sjálfsögðu óska ég héraðs-
sambadninu farnaðar í öllum þeim þjóð-
þrifamálum, sem æskulýðsfélögum eru á
herðar lögð og ætlað að bera fram til sig-
urs. En fyrst og síðast óska ég þess, að
það geti kennt æskunni að skemmta sér,
kennt henni að skemmta sér á þann veg,
að það verði þjóðlífinu til blessunar, en
ekki gagnstætt, kennt henni að gleðjast
bannig, að aldrei þurfi í framtíðinni að
hverfa að því neyðarbrauði að banna ung-
lingum innan 16 ára að sækja skemmtanir
hins þroskaðra æskufólks.
Takist það, hefur heilladís snæfellskrar
^sku leiðsöguna.
Kristján Jónsson.
Skokþáttur
Ritstjóri: Þorsteinn Skúlason.
Sennilega nýtur enginn núlifandi skák-
meistari jafnmikilla vinsælda og Paul Ker-
es. Heldur þar einkum tvennt til, fyrst og
fremst auðvitað hin glæsilega og hug-
myndaríka taflmennska hans, sem á sér
vart sinn líka, þegar honum tekst bezt upp,
og í öðru lagi hin glaðværa og yfirlætis-
lausa framkoma hans, en Keres er hinn
mesti sjentilmaður og heimsborgari.
Keres hefur staðið í fremstu röð óslitið
síðustu tuttugu og fimm ár eða þar um bil
og er því einna elztur þeirra, er nú standa
í fylkingarbroddi í liði skákgyðj unnar
Caissu. 1 öllum þeim áskorendamótum,
sem háð hafa verið, hefur 'hann hlotið ann-
að sæti. Alltaf hefur vantað herzlumuninn
til þess að hann hlyti hinn þráða sigur og
þannig reyndist það einnig á síðasta áskor-
endamóti, sem háð var í Willemstad á Cu-
racao í Hollenzku Vestur-Indíum. Varð
þetta mörgum áhangendum hans til hinna
mestu vonbrigða. Annað sæti á áskorenda-
móti veitir rétt til þátttöku í því næsta,
og er því einnig mikilvægt sæti. En í síð-
ustu mferð í Curacao tókst hinum vígreifa
Efim Geller að ná Keres og deila með hon-
um öðru sætinu. Þurftu þeir því að tefla
til úrslita um þátttökuréttinn í næsta á-
skorendamóti. Skyldu þeir tefla átta skák-
ir, og yrðu þeir jafnir að þeim loknum,
átti Geller að hreppa hnossið, því hann
hafði hærri stigatölu út úr mótinu. Þetta
einvígi hefur nú nýlega farið fram í
Moskvu og lauk því með sigri Keresar 4:
3J/2- Leikar stóðu jafnir, þegar ein skák
SKinfaxi
27