Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1962, Page 38

Skinfaxi - 01.11.1962, Page 38
Skinfaxi. Munið að greiða áskriftargjald ritsins skilvíslega. Skýrslur og skattar. Það er mjög áríðandi, að ungmennafé- lögin sendi skýrslur og skatta til héraðs- sambandanna fyrir aprílmánaðarlok ár hvert. Skattur til U.M.F.l. er kr. 5,00 af hverjum félagsmanni fullra 16 ára. (Ekki kr. 2,00 eins og misprentazt hefur á skýrslueyðublöðin.) Laganefnd. 1 nefnd til að endurskoða lög U.M.F.Í. hefur sambandsstjórn kosið þessa menn: Stefán Ólaf Jónsso, Rvík, Hafstein Þor- valdsson, Selfossi og Guðjón Jónsson, Reykjavík. ÚR SKYRSLUM HÉRAÐSSAMBANDANNA 1961 Héraðssamband Suður-Þingeyinga. Héraðsþing var haldið á Grenivík. Hald- ið héraðsmót í frjálsum íþróttum og þrjú önnur frjálsíþróttamót innan héraðs og héraðsmót í sundi. Þátttaka í landsmóti U.M.F.l. og Norðurlandsmeistaramótum í frjálsum íþróttum og knattspyrnu. Bridge- keppni innanhéraðs. 5 kennarar störfuðu á vegum sambandsins misjafnlega lengi. Kennsla fór fram í þessum greinum: Frjálsum íþróttum, sundi knattspyrnu, þjóðdönsum og fimleikum. Byggt var hús við íþróttaskólann á Laugum til geymslu og afnota á mótum. Keypt vönduð íþrótta- áhöld og mælitæki. Dómaranámskeið var haldið á Laugum í júní. Þátttakendur voru 12 og tóku þeir allir héraðsdómarapróf. Starfsíþróttir voru æfðar mikið. Haldið var unglingamót í frjálsum íþróttum. Þátttakendur 10—15 ára. Áhugi fyrir frjálsum íþróttum og knattleikjum er miklu meiri en áður. Ungmennasamband Eyjafjarðar. Héraðsþing haldið í Árskógi 20.—21. febr. 10 stjórnarfundir haldnir. Héraðs- mót var haldið að Laugaborg. Mörg skemmtiatriði. Keppt í 19 frjálsíþrótta- greinum karla og kvenna. Nokkrir kepp- endur tóku þátt í vormóti í frjálsum íþróttum á Akureyri og 17. júnímóti á sama stað. Haldið var kvenna- og drengja- mót í frjálsum íþróttum. Sambandið tók þátt í landsmótinu á Laugum. Sambandið sigraði á Norðurlandsmóti í frjálsum íþróttum og fjögurra bandalaga keppnina. Þrír félagar tóku þátt í utanför U.M.F.l. Haldið héraðsmót í knattspyrnu og sent lið á knattspyrunmót Norðurlands. Sam- bandið stóð að bændadegi í héraðinu eins og að undanförnu. B íþróttakennarar störf- uðu hjá sambandinu um tíma og ferðuðust milli sambandsfélaga. — Pétur Sigurðsson ritstj. heimsótti marga barnaskóla í hér- aðinu og flutti erindi um bindindismál. Héraðsstjóri sambandsins var í för með honum. Settar voru niður 3000 trjáplöntur að Miðhálsstöðum í Öxnadal — 30 þátt- takendur. Haldið var námskeið í starfs- íþróttum og keppt á bændadeginum. Hald- in voru 2 skákmót á árinu, hraðskákmót og hið venjulega héraðsmót. Starfsemi fé- laganna er misjöfn. Sum starfa ágætlega. Áhugi yngri félagsmanna virðist vaxandi. Ungmennasamband Skagaf jarðar. Héraðsþing haldið á Sauðárkróki 13.— 14. maí. Þessi mót voru haldin: Héraðs- 38 S K I N F A X I

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.