Skinfaxi - 01.12.1966, Side 8
þröun í Þrastaskogi hlaut m.a. aðMj Siðasti fundur nefndarinnar var
byggjast á því að þar yrðu ýmsar
endurbætur framkvæmdar.
Á sambandsþingi U.M.F.Í. sem háð
var í Reykjavík 5. og 6. sept. 1959 var
m.a. rætt um framtíð Þrastaskógar og
helztu verkefni er þar bíða úrlausn-
ar. Á þessu þingi var kosin 5 manna
nefnd, er skyldi gera tillögur um
framtíðarframkvæmdir í skóginum,
í samráði við stjórn U.M.F.Í.
í nefndina voru kosnir: Þórður
Pálsson Reykjavík, skógarvörður
Þrastaskógar, Ólafur Ág. Ólafsson,
Valdastöðum Kjós., Ólafur H. Guð-
mundsson, Hellnatúni Rang., Böðvar
Pálsson, Búrfelli, Grímsnesi og Stef-
án Jasonarson Vorsabæ, Gaulverja-
bæjarhr. Nefndin kaus Þórð Pálsson
formann nefndarinnar.
Fyrsti fundur nefndarinnar var
haldinn í sumarbústað skógarvarðar-
ins í Þrastaskógi, 22. maí 1960. „Áður
en fundur hófst, gengu nefndarmenn
um skóginn, athuguðu vöxt hans og
aðstöðu til mannvirkjagerðar í skóg-
inum.“
Á þessum fyrsta fundi voru nefnd-
armenn sammála um það, að bygg-
ing leikvangs í dalverpinu inn við
Tryggvatré „sé það verkefni sem
fyrst ber að framkvæma.“ Þá taldi
nefndin að gera þyrfti malarborinn
veg að leikvanginum. „Rætt var um
nauðsyn þess, að áður en langt um
líður, verði komið upp byggingum
í Þrastaskógi, sem skapi þar aðstöðu
til hollra skemmtana og sumardvalar
um lengri eða skemmri tíma.“
Þannig var nú m.a. frá sagt í fund-
argjörð, af fyrsta fundi nefndarinn-
ar.
haldinn í Hotel Tryggvaskála 5. fe-
brúar 1961.
Sem sagt — þegar hér var komið
sögu, hafði Þrastaskógarnefid „gert
tillögur um framtíðarframkvæmdir í
Þrastaskógi.11 Svo sem upphaflega
var til ætlast, er hún var kosin.
Á því 6. og hálfu ári, sem liðið er,
síðan Þrastaskógarnefnd lauk störf-
um, hefur stjórn U.M.F.I. ekki sofið á
verðinum. Áhennar vegur hefur ýmsu
af „óskalista“ nefndarinnar verið
þokað áfram: Bygging leikvangs inn
við Tryggvatré er komið vel á veg.
Aðeins er eftir að sá í völlinn, eða
þekja hann og lagfæra áhorfenda-
svæði.
Akvegur hefur verið gerður af
þjóðvegi inn að leikvelli og byggður
hefur verið veitingaskáli á grunni
gamla Þrastalundar. Skálinn er hinn
snotrasti að öllum frágangi, bæði úti
og inni og gert er ráð fyrir að hann
falli vel inní stærri byggingu, þegar
stundir líða fram. Umhverfi skálans
hefur verið gert mjög smekklegt og
aðlaðandi. Allir sem um þjóðveginn
fara hljóta að taka eftir þessum vist-
lega veitingastað, enda hefur reynsl-
an sýnt það í þau 2 sumur sem skál-
inn hefur verið starfræktur, að þar
er vinsæll áningarstaður í fögru um-
hverfi.
Þrastalundur er 140*4 vallardag-
slátta að stærð. Gjafabréfið fyrir
bessari stórmerkilegu gjöf, sem af-
hent v?.r stiórn U.M.F.Í. á öndverðu
ári 1911 á 76. afmælisdegi gefandans,
markaði tímamót í starfssögu ung-
mennafélaganna.
Með eignarétti á Þrastaskógi sköp-
8
SKINFAXI