Skinfaxi - 01.12.1966, Qupperneq 9
Nýr og vinsæll áningarstaður: Þrastalundur hinn nýji.
uðust miklir möguleikar hjá ung-
mennafélögunum. Möguleikar sem
kölluðu þau til aukinna starfa. Vissu-
lega lagði þessi gjöf ungmennafélög-
unum einnig skyldur á herðar.
Hvernig þau hafa brugðist við þess-
um skyldum, má að sjálfsögðu deila
um. Enginn, sem til þekkir, mun þó
mæla á móti, að mikið starf hefur
verið af hendi leyst í Þrastaskógi á
liðnum árum. Fórnfýsi einstaklinga
og félagsheilda hefur markað þar
merk spor.
Og hamingjunni sé lof, að enn eiga
ungmennafélögin óþrjótandi verkefni
er bíða úrlausnar í Þrastaskógi
Þrastarskógur verður ávallt dýrmæt
eign, sem ungmennafélögin mega
ekki vanrækja. Þessi fagri blettur
verður annað og meira en afgirtur
skógarteigur, sem aðeins fáir útvaldir
fá inní að komast.
Hann verður að vera miðstöð
menningarlífs þess, sem ungmenna-
félögin ávallt eiga að tileinka sér —
opinn öllum almenningi, áningarstað-
ur eldri og yngri, í leik og starfi.
Á sambandsþingi U.M.F.Í. að Laug-
arvatni 2. og 3. júlí 1965 var sam-
þykkt að kjósa 5 manna milliþinga-
nefnd til þess að gera tillögur um
framtíð Þrastaskógar „í því sam-
bandi skal nefndin hafa í huga, dval-
arhótel og miðstöð fyrir æskulýðs-
starfsemi, svo og fjáröflun til þeirra
framkvæmda.“
Hver árangur verður af störfum
nefndarinnar, er en óráðin gáta. Þar
verður þyngst á metunum fórfýsi og
félagsþroski ungmennafélaganna um
allt land.
SKINFAXI
9