Skinfaxi - 01.12.1966, Page 28
13. landsmót UMFI 1968
Reglur um tilhögun íþróttakeppninn-
ar á XIII. landsmóti UMFÍ árið 1968,
eins og þær voru samþykktar á sam-
bandsráðsfundi UMFÍ 25. sept. 1966.
Keppnisgreinarf mótsins verða:
Frjálsíþróttir — Karlagreinar:
100 m. hlaup, 400 m. hlaup, 1500
m. hlaup, 5000 m. hlaup, 1000 m. boð-
hlaup, langstökk, þrístökk, hástökk,
stangarstökk, kúluvarp, kringlukast
og spjótkast.
Kvennagreinar:
100 m. hlaup, 4x100 m. boðhlaup,
langstökk, hástökk, kringlukast
spjótkast og kúluvarp.
í boðhlaup má hvert héraðssam-
band senda eina sveit.
Sund. — Karlagreinar:
100 m. frjáls aðferð, 200 m. bringu-
sund, 800 m. frjáls aðferð, 4x50 m.
boðsund (frjáls aðferð), 100 m. bak-
sund.
í boðsund má hvert héraðssamband
aðeins senda eina sveit.
Glíma.
Handknattleikur kvenna.
Körfuknattleikur karla.
Iþróttasýningar.
Hópsýningar í leikfimi.
Úrvalsflokar karla og kvenna í leik-
fimi.
Þjóðdansar. Glímusýning.
Landsmótsnefnd heimilast að taka
handknattleik karla inn á mótið, sem
sýningagrein.
Frjálsar íþróttir
Keppni í frjálsum íþróttum fer
fram báða dagana. Höfð verður for-
keppni eða undankeppni og úrslit eft-
ir því, sem bezt hentar keppendum
og fyrirkomulagi dagskrár.
Þátttökutilkynningar skulu vera
komnar í hendur framkvæmdanefnd-
ar mótsins í síðasta lagi viku fyrir
mótið. Hvert héraðssamband annist
þessar tilkynningar, en annars stjórn-
ir félaga, sem ekki eru aðilar að hér-
aðssambandi. Ölum þátttökutilkynn-
ingum fylgi nöfn fyrirliða keppenda-
hópanna. Hver þáttakandi hefur rétt
til keppni í þrem íþróttagreinum og
boðhlaupi. Þrjá keppendur má hvert
héraðssamband senda í hverja grein.
Daginn fyrir keppnisdag skulu fyr-
irliðar íþróttahópanna og stjórnend-
ur keppnisgreina ásamt starfsmönn-
um íþróttakeppninnar mæta til fund-
ar á mótsstað. Mótsstjórinn auglýsir
tíma og fundarstað. Á fundi þessum
skulu bornar fram kærur vegna þátt-
töku eða áhugamannareglna. Þá
verður og framkvæmt nafnakall og
afhent verða númer keppenda, sem
þeir bera á brjósti og baki í keppn-
inni. Að loknum þeim fundi verða
engar breytingar leyfðar, nema í boð-
sveitum. Mjög rík áherzla er lögð á,
28
SKINFAXI