Skinfaxi - 01.12.1966, Qupperneq 29
að keppendur mæti á réttum tíma til
keppni og beri númer sitt og komi
fram í sambandsbúningum.
Þá verða á þessum fundi afhentar
tímasetningar keppnisgreina, skipað
niður í riðla, dregið um brautir, stökk
og kaströð.
Nafnakall þátttakenda hverrar
keppnisgreinar fer fram tíu mínút-
ur fyrir hinn auglýsta tíma. Skulu þá
keppendur mæta á stað, sem síðar
verður auglýstur, og skulu þeir og
starfsmenn ganga fylktu liði þaðan
til keppnisstaðar. í öllum riðlahlaup-
um flytjast 3 (ef brautir eru sex)
eða 2 (ef brautir eru fjórar) fyrstu
menn úr hverjum riðli í næsta hlaup
á eftir.
Ef skipta verður þátttakendum í
1500 m. hlaupi í riðli með allt að 15
manns í riðli, færast 7 þeirra fyrstu
í næsta hlaup á eftir. Notaðar verða
viðbragðsstoðir, en ekki leyft að
grafa holur á viðbragðsstað. Sex
fyrstu menn hljóta stig, sem hér seg-
ir: 1. 6 stig. 2. 5 stig 3. 4 stig. 4. 3 stig.
5. 2 stig. 6. 1 stig. Sami stigafjöldi
gildir í boðhlaupum. Verði einstakl-
ingar eða sveitir jafnar skiptast stig
að jöfnu milli þeirra, en aukakeppni
fer fram um verðlaun.
Fyrstu 6 menn hljóta verðlaun.
Verðlaun verða þá veitt sem hér seg-
ir:
1. Því héraðssambandi, sem flest
stig hlýtur í samanlögðum frj álsí-
þróttagreinum.
2. Stigahæstu konu í frjálsum í-
þróttum.
3. Stigahæsta karli í frjálsum í-
þróttum.
4. Fyrir bezta afrek konu 1 frjáls-
um íþróttum skv. stigatöflu.
SKINFAXI
5. Fyrir bezta afrek karls í frjáls-
um íþróttum skv. stigatöflu.
Stökkhæðir í hástökki og stangar-
stökki verða sem hér segir:
1. Hástökk kvenna: 120 cm, 125 cm,
130 cm, 135 cm, 137 cm og svo hækk-
að um 2 cm úr því.
2. Hástökk karla: 150 cm, 160 cm,
165 cm, 170 cm, 175 cm, 177 cm og svo
hækað um 2 cm úr því.
3. Stangarstökk: 2,80 m, 2,90 m, 3,0
m, 3,10 m, 3,20 m og svo hækkað um
5 cm úr því.
Sund
Sömu reglur gilda um sundkeppn-
ina og frjálsar íþróttir. Hver þáttak-
andi hefur rétt til keppni í þrem
sundgreinum og boðsundi. Fimm sér-
verðlaun verða veitt í sundi sem í
frjálsum í þróttum. Sundfólk skal
vera númerað á æfingabúningi
(skjólbúningi) sínum. Keppt verður í
25 metra langri laug ca. +22° C.
Glíma
Sömu reglur gilda um glímu og
frjálsíþróttakeppnina, hvað fjölda
þátttakenda og stigreikningi viðvík-
ur. Stigahæsti glímumaðurinn hlýtur
sérverðlaun og einnig stighæsta hér-
aðssambandið.
Hópíþróttir
1. Þáttaka í hópíþróttum verði
könnuð um áramót, formlegar þátt-
tökutilkynningar sendar fyrir 1. maí.
Keppni hefjist ekki fyrr en 15. júní.
2. Landinu verði skipt í þrjú svæði,
þegar þátttökutilkynningar hafa bor-
izt.
29