Skinfaxi - 01.02.1968, Blaðsíða 4
Myndin er tekin, er
verið var að Ijúka
við að þekja
íþróttavöllinn að
Eiðum í fyrra. Þarna
voru þaktir 10 þús.
fermetrar, en á
|)essum velli verður
keppt í knattspyrnu.
þrótt, vegna takmarksins, sem stefnt
er til: — Landsmóts UMFÍ. —
Það er sýnt, að margir nota tímann
vel til undirbúnings. Þeim er ljóst að
nota verður augnablikið, því að úr
safni nægilega margra augnablika
skapa þeir sér langan og notadrjúgan
undirbúnings- og æfingatíma. Á þetta
minnir okkur vel gamla góða máltæk-
ið: „Geymdu ekki til morguns það sem
þú getur gert í dag.“
Hvernig eru svo horfurnar eystra?
Gengur allur undirbúningur undir
landsmótið vel? Þannig spyrja margir.
Sýnir það vel, að áhugi fyrir að vel
takizt um framkvæmd mótsins, er
mikill og almennur meðal ungmenna-
félaga og annarra áhugamanna.
Svolítið erfitt er að svara þessum
spurningum fulkomlega. Þar sem við
eigum einungis grasvelli, og það nýja
grasvelli, getum við ekki sagt um á-
stand þeirra fyrr en gróður hefur lifn-
að í vor. Þá fyrst getum við dæmt um
það hvernig veturinn hefur farið hönd-
um um nýgræðinginn, sem var státinn
og fallegur er hann hallaði sér til hvíld-
ar í haust.
Annars má segja að undirbúningur
sé í góðum gangi, er tekið er tillit til
mjög erfiðra samgangna og slæmrar
veðráttu, einkum að undanfömu.
Fimleikaæfingar undir hópsýningu
pilta, fer fram á Seyðisfirði, Eiðum,
Neskaupstað og Fáskrúðsfirði. Yfir-
stjórn þessara æfinga hefur Þorvaldur
Jóhannsson íþróttakennari á Seyðis-
firði, en íþróttakennarar á þeim stöð-
um, er ég nefndi, æfa hver sinn hóp.
Frú Elín Óskarsdóttir á Eskifirði
æfir ungt fólk í þjóðdönsum, eru þær
æfingar enn bundnar við Eskifjörð ein-
an.
Og Aðalsteinn Eiríksson æfir sína
ungu glímumenn undir sýningu og
keppni. Þær æfingar hafa einungis far-
ið fram á Reyðarfirði, en ef til vill bæt-
ast fleiri í hópinn.
Nokkur vafi virtist á því að okkur
tækist að uppfylla þá ósk að koma upp
sögulegri leiksýningu. Óviðráðanlegar
orsakir hindruðu, að ágætur maður,
sem ætlaði að semja handrit að þeirri
sýningu, gæti leyst það af hendi. Varð
því að leita t.il annarra en tími orðinn
naumur. Virtist um hríð, að hér kynn-
4
SKINFAXI