Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1968, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.02.1968, Blaðsíða 9
Frá starfi ungmeima- félaganna I Ungmennasambandi N orður-Þingeyinga hefur höfuðáherzla verið lögð á unglingastarf- ið síðastliðin ár. Sl. sumar var haldið ung- lingamót í frjálsum íþróttum með ágætri þátt- töku og athyglisverðum árangri. 17 unglingar kepptu svo sem gestir á unglingamóti HSÞ á Laugum í ágústmánuði. Var sú ferð eins- konar verðlaunaferð fyrir þá, sem beztum árangri höfðu náð, og greiddi UNÞ kostnað- inn. Sambandssvæði UNÞ er strjálbýlt og fá- mennt og samgöngur oft stirðar. Er því að mörgu leyti örðugt um félagastarfsemi, en áhugi virðist samt fara vaxandi, einkum með- al hinina yngstu, og er það vissulega mjög ánægjulegt. T.d. má geta þess, að Ungmenna- félag Núpsveitunga var endurlífgað sl. sum- ar af kornungu fólki í sveitinni, og er elzti maðurinn í stjórn félagsins aðeins 16 ára gamall. Og hér var ekki látið sitja við orðin tóm, því félagið bar sigur úr býtum á Ung- lingamóti UNÞ. Formaður er Sigurður Hall- dórsson, Valþjófsstöðum, aðeins 15 ára gam- all og meðal efnilegustu íþróttamanna í sín- um aldursflokki. í UNÞ eru 6 ungmennafélög: Umf. Leifur heppni, Kelduhverfi; Umf. Fjöllunga, Hóls- fjöllum; Umf. Axfirðinga, Axarfirði; Umf. Núpsveitunga, Núpasveit; Umf. Neisti, Sléttu og Umf. Afturelding, Þistilfirði. Formaður UNÞ er Brynjar Halldórsson. Hvað gerist í félagsheimilunum? í ,,Skarphéðins“-þætti blaðsins Þjóðólfs birt- ist nýlega grein eftir ritstjóra þáttarins, Arnór Karlsson um starfsemina í tveim fé- lagsheimilum á sambandssvæði Skarphéð- ings. Þessi grein og þær upplýsingar, sem hún veitir, eiga erindi til allra, og þess vegna tökum við okkur það bessaleyfi að birta grein ina. „Eg hef að þessu sinni fengið til birtingar yfirlitsskýrslur yfir starfsemina í tveimur fé- lagsheimilum á sl. ári. Mikið af þessu starfi fer að vísu fram á vegum annarra aðila en ungmennafélaganna, en frumkvæðið að byggingu húsanna mun þó yfirleitt frá ung- mennafélögunum, og mikill hluti af starfsem- inni er einmitt til orðinn vegna tilvistar fé- lagsheimilanna. Nokkuð hefur borið á því á síðari árum að fólk hefur gert sér ranga hugmynd um starfsemina í félagsheimilunum. Víða hefur komið fram, að margir telja opinbera dans- leiki veigamesta þáttinn í þeirri starfsemi, sem þar fer fram. Stafar það væntanlega bæði af því, að þessar samkomur eru aug- lýstar í útvarpi, og einnig, að þær sækir fólk úr fjarlægum byggðarlögum. Margt hefur verið rætt og ritað um þessa starfsemi og ekki allt af miklum kunnugleika. Vissulega má margt betur fara á þessum samkomum, enda er stöðugt unnið að umbótum á þessu sviði. Væntanlega verður þess þó langt að bíða, að öllum falli þessar samkomur að öllu leyti í geð. Mun svo um flest, sem breytist svo mjög I samræmi við tíðaranda og tízku, eins og dansskemmtanir unga fólksins gera. Allir, sem til þekkja, vita hve mikils virði þessi hús SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.