Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1968, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.02.1968, Blaðsíða 8
Sigurð Þórarinsson. Rithöfundarnir Þórbergur Þórðarson og Guðmundur Daníelsson hafa skemmt með íþrótt sinni, Kristinn Hallson, Guðmundur Jónsson, Sigurveig Hjaltested, Inga María Eyjólfsdóttir og Friðbjörn Jóns- son hafa sungið einsöng. Lúðrasveit Selfoss, Söngfélag Þorlákshafnar, nem- endur Húsmæðraskólans að Laugar- vatni og Iþróttakennaraskólans hafa flutt skemmtiefni. Brynjólfur Jóhann- esson, Þorsteinn Ö. Stephensen, Stef- anía Pálsdóttir og Hulda Runólfsdóttir hafa skemmt með framsagnarlist sinni, en of langt mál væri upp að telja alla þá ágætu menn, er komið hafa með ferðasögur eða aðrar frásagnir og sýnt litmyndir, en ljúka má upptalningunni með því að nefna sýningu á óperunni Astardrykkurinn eftir Donizetti. Sú sýning fór fram að BORG hinn 10. des. sl. við frábærlega góðar undirtektir. Alls hafa 11 kvöldvökur verið haldn ar á þeim tveimur árum, sem liðin eru síðan félagsheimilið var vígt, en styrkt- arfélögum boðið á óperusýninguna í stað 12. kvöldvökunnar. Kvöldvökurn- ar hafa staðið undir sér fjárhagslega og þær vonir, sem við þessar samkom- ur voru bundnar í upphafi, hafa rætzt. En það eru styrktarfélagarnir, sem mynda grundvöllinn að þessari starf- semi, og þannig þarf það einnig að verða í framtíðinni. Góð aðsókn að kvöldvökunum hefur verið okkar ómetanleg hvatning til að vanda dagskrána sem bezt, og um leið og ég þakka öllum velunnurum veittan stuðning, vil ég bera fram þá von, að við fáum góðar undirtektir nú, þegar ný áskriftasöfnun hefst. Böðvar Stefánsson Til fróðleiks fylgir hér svo dagskrá 6 fyrstu kvöldvakanna að Borg: 1. KVÖLDVAKA 13. MARZ 1966: 1. Avarp: — Bjarni Bjarnason, fyrrverandi skólastjóri Laugarvatni. 2. Píanóleikur: — Skúli Halldórsson, tón- skáld. 3. Frásagnir og draugasögur: — Þórbergur Þórðarson. 4. Einsöngur: — Sigurveig Hjaltested. 5. Danssýning: — Húsmæðraskóli Suður- lands. 6. Sýndar myndir af bændum í Grímsnesi gerðar af Baltazar. 2. KVÖLDVAKA 17. APRÍL 1966: 1. Myndagetraun. — Stjórnandi Eyþór Ein- arsson, grasafræðingur. 2. Tvöfaldur kvartett. — Stjórnandi Jónas Ingimundarson. 3. Einsöngur: — Friðbjörn Jónsson. 4. Píanóleikur: — Jónas Ingimundarson. 5. Litskuggamyndir úr Öræfum og Esjufjöll- um. — Eyþór Einarsson grasafræðingur flutti skýringar. 3. KVÖLDVAKA 18. MAÍ 1966: 1. Kvæði eftir Elínborgu Brynjólfsdóttur. 2. Lúðrasveit Selfoss, stjórnandi Ásgeir Sig- urðsson. 3. Framsögn og upplestur: — Stefanía Páls- dóttir. 4. Þjóðdansar frá ýmsum löndum. — íþrótta- kennaraskóli íslands, stjórnandi Minerva Jónsdóttir. 4. KVÖLDVAKA 4. NÓVEMBER 1966: 1. íslenzk eldfjöll. — Dr. Sigurður Þórar- insson flutti erindi og sýndi litmyndir. 2. Einsöngur: — Kristinn Hallsson. 3. Framsögn: — Stefanía Pálsdóttir. 4. Myndagetraun. — Stjórnandi dr. Sigurður Þórarinsson. Framh. á bls 16 8 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.