Skinfaxi - 01.02.1968, Side 13
Fjórar snjallar sundkonur
fró Selfossi.
Talið frá vinstri:
Sólveig Guðmundsdóttir,
Ásrún Jónsdóttir,
Ingunn Guðmundsdóttir,
og Guðmunda Guðmundsdóttir.
júní, og sóttu hann 18 fulltrúar frá 13 sam-
bandsfélögum. í skýrslunni er skrá yfir ung-
mennafélögin í Héraðssambandinu, og greint
er frá hverjir eru formenn þeirra og stofn-
unardegi þeirra flestra. Eru þetta 26 félög,
12 í Rangárvallasýslu og 14 í Árnessýslu.
Grein er um Sigurð Greipsson sjötugan, og
sagt er frá afmælisdegi hans 22. ágúst sl.
Héraðssambandið átti frumkvæði að sam-
kvæmi, sem haldið var í Aratungu, Sigurði
vinna að, fyrir nokkrum árum. Vonir standa
til að myndin verði tilbúin til sýningar síðar
á þessu ári.
í skýrslu frjálsíþróttanefndar er greint frá
íþróttaæfingum og mótum á vegum sam-
bandsins. Telur nefndin að skortur á leið-
beinendum hái mjög íþróttastarfseminni. —
Vaxandi áhugi virðist þó vera fyrir iðkun
frjálsra íþrótta á sambandssvæðinu, og tóku
19 félög þátt í mótum sambandsins á sl. ári
en aðeins 11 árið áður. Héraðsmót í frjálsum
íþróttum voru 4 á sl. ári, og hlaut Umf. Sel-
foss flest stig á þeim öllum, samtals 279 stig.
Nr. 2 var Umf. Vaka með 137 stig og nr. 3
Umf. Samhygð með 117 stig. Getið er 7 ann-
arra frjálsíþróttamóta innan héraðsins og
6 utan þess, sem íþróttafólk frá HSK tók
þátt í. Þeirra á meðal er hin árlega keppni
við Snæfellinga, sem fór að þessu sinni fram
að Breiðabliki í Miklaholtshreppi HSK vann
þessa keppni og hlaut 96 stig, en HSH hlaut
68 stig.
f skýrslu sundnefndar HSK er skýrt frá því
að sundfólk sambandsins hafi tekið þátt í
19 sundmótum, bæði hérlendis og erlendis,
og það hafi sett 66 héraðsmet á árinu og þar
af 5 íslandsmet. Tvö sundmót voru haldin á
vegum nefndarinnar. Héraðsmót í Hvera-
gerði, en þar sigraði Umf. Selfoss með 205
stig. Umf. Ölfusinga hlaut 60 stig, og ung-
lingasundmót HSK en þar voru aðeins kepp-
endur frá Umf. Selfoss.
Skýrslum þessum fylgir afrekaskrá HSK
1967 og skrá yfir HSK met.
í skýrslu körfuknattleiksnefndar er sagt
frá þátttöku liðs HSK í íslandsmóti KKÍ, en
þar leikur liðið í annarri deild.
Körfuknattleikskeppni HSK vann Umf.
Laugdæla, nr. 2 var A-lið Umf. Selfoss, en
5 lið tóku þátt í mótinu.
Knattspyrnunefnd HSK sá um Skarphéð-
insmót í knattspyrnu. Þar sigraði A-lið Umf.
Selfoss. Sagt er frá ýmsum knattspyrnu-
mótum, sem lið Umf. Selfoss tók þátt í m.a.
í keppnisferðalagi til Færeyja.
í skýrslu glímunefndar er sagt frá glímunni
um Skarphéðinsskjöldinn. Héraðsambandið sá
Fjórðungsglímu Sunnlendinga.
Skáknefnd HSK sá um þátttöku HSK í
sveitakeppni í skák, sem UMFÍ gekkst fyrir.
Sveit HSK var þar í öðru sæti, en aðeins 3
sveitir mættu til keppni.
Skýrslum íþróttanefndanna lýkur með
töflu yfir stigatölu félaganna eftir héraðs-
mótin á árinu. Umf. Selfoss hlaut 630 stig.
Umf. Vaka 137, Umf. Samhygð 117 og Umf.
Ölfusinga 98 stig, en alls hlutu 18 félög stig.
Ársskýrslu lýkur með reikningi fyrir árið
1967. Niðurstöðutölur rekstrarreiknings eru
kr. 729.640,00, ágóði af héraðmóti 66.142,32
kr., kennslustyrkir frá ÍSÍ og UMFÍ kr. 77.914
og styrkir úr héraði, sem áður er minnzt á.
Helztu gjaldaliðir eru framkvæmdastjórn kr.
46 þúsund, íþróttakennsla kr. 48,710,00
kennslustyrkir til félaga kr. 56.373,00 og
ferðalög íþróttahópa kr. 58,770,00. Sjóður
SKINFAXI
13