Skinfaxi - 01.08.1980, Blaðsíða 6
F]ÖLSAryL0^NAj^
UMFÍ
N.IÚNl' RSQ
GÖNGUDAGUR
FJÖLSKYLDUNNAR
Eins og öllum lesendum Skinfaxa er kunnugt fóri
göngudagur fjölskyldunnar fram 14. júní s.l. Því
miður getum við ekki greint frá heildarþátttöku
þótt komið sé nú fram í ágúst, þegar þetta er
skrifað, vegna þess hve margir eiga eftir að senda
skýrslur. Samt er nú ljóst að þátttaka hefur víða
verið góð, og hreint ótrúlega mikil á sumum stöð-
um. Okkur hafa borist ágætar leiðarlýsingar og
frásagnir frá mörgum og vil ég þakka þeim sér-
staklega fyrir.
Ymsir hafa haft samband \ ið okkur og hvatt til
þess að slíkur göngudagur verði gerður að ár-
legum viðburði og mun Sambandsráðsfundurinn
í haust væntanlega fja.Ha um það mál.
Þá hefur einnig komið l’ram að „Göngudagur
fjölskyldunnar” hefur einnig orðið til þess að
ýmsir hafa farið að leggja stund á göngur og
náttúruskoðun í frístundum sínum og haft mikla
ánæ,gju af.
Eg vil að lokum sem upphafsmaður að þessari
göngu, þakka hinum fjölmörgu sem lagt hafa
málinu lið. Eg vona að allir sem þátt tóku í göng-
udeginum hafi haft bæði gagn og gaman af.
Pátmi Gíslason
6
SKINFAXI