Skinfaxi - 01.08.1980, Blaðsíða 24
Fœreyskjr keppendur vorugestír á sumarkátíð UIA. Hér erfararsijóriþeirra a<S iaka
við viðurkenningufrá Hermanni Níelssyniform. UIA.
úrvalsliði UÍA og sigruðu Húsa-
víkurdömurnar, 11—9.
Hápunktur sumarhátíðarinn-
ar var vafalítið skrúðganga aðild-
arfélaganna og hátíðardagskrá á
sunnudeginum 12. júlí. Skrúð-
gangan var geysilega fjölmenn og
sérlega glæsilcg. En það var hinn
dugmikli formaður UÍA, Her-
mann Níelsson sem stjórnaði
göngunni. Flest félögin mættu
með mikið lið í skrúðgönguna og
voru nálægt 100 manns í röðum
nokkurra félaga. I göngunni
mátti sjá færeyska fánann, en 7
gestir frá Færeyjum tóku þátt í
hátíðinni. Það vakti athygli hvað
færeysku ungmennin stóðu sig yf-
irleitt vel í keppni, en frjálsar
íþróttir eru einungis stundaðar í
skólum í Færeyjum.
A hátíðardagskránni var ýmis-
legt til skemmtunar. Ávörp íluttu
Hermann Níelsson form. UÍA og
Þórarinn Þórarinsson fyrrv.
skólastjóri á Fiðum. Dansílokkur
lrá Seyðisfirði sýndi ýmsa dansa.
Brúðuleikhús UÍA sýndi Lagar-
lljótsorminn undir stjórn Maríu
Kristjánsdóttur. Halli og Laddi
sáu um að kitla hláturtaugarnar.
Grettir Björnsson spilaði á har-
moniku milli atriða og meðan
skrúðganga fór fram. Fallhlífar-
stökkvarar frá Akureyri komu
svífandi úr ílugvél ofan á leik-
vanginn. Þingmenn Austurlands
háðu vítaspyrnukeppni og sigr-
aði þar hin gamla íþróttakempa
UIA Tómas Arnason. Stjórn
UlA og sveitarstjórnarmenn á
Austurlandi léku knattspyrnu til
skemmtunar fyrir áhorfendur.
A hátíðinni var opin minja- og
sögusýning UÍA og urðu margir
til að skoða hana. Sýningunni
stjórnaði Björn Magnússon. Fkki
létu veðurguðirnir sitt eftir liggja,
því veðrið skartaði sínu fegursta
meðan á hátíðinni stóð.
íþrótta- og ijölskylduhátíð
sem þessi krefst geysilegrar
skipulagningar ef áætlun á að
haldast, og það gerði hún í öllum
höfuðatriðum að þessu sinni. Það
var samdóma álit gesta að fram-
kvæmd öll hafi verið til fyrir-
myndar og ég er ekki í nokkrum
vala um, að þessar sumarhátíðir
UÍA haf'a orðið til þess að eíla allt
starf sambandsins og félaganna
ótrúlega mikið.
V'onandi eiga (leiri sambönd
eftir að fylgja fordæmi okkar
Austfirðinga og koma á íþrótta-
hátíðum í svipuðu formi og þessi
æskulýðssamkoma á Austur-
landi.
Péiur Eiðsson.
Fyrstur í mark Óttar
A rmannsson Súlunni.
Kjartan Ólafsson Súlunni,
AgústÓlafsson UMFS,
Jókiann Jókiannsson SE oy
Cuðmundur Hallyríms-
son Leikni.
24
SKINFAXI