Skinfaxi - 01.12.1982, Blaðsíða 9
f*uríður Jóhannsdóttir.
stjórnarfundi. Ingimundur Ingi-
mundarson hefur verið starfs-
maður sambandsins á undaníorn-
um sumrum. Við höfum ekki liaft
starfsmann að vetri til fyrr en nú
að við réðum Ingimund fram að
sambandsþingi UMSB, sem
halda á í febrúar. Aðalverkefni
hans á þessum tíma verður að
undirbúa og sjá um útgáfu á árs-
skýrslu sambandsins, geía út af-
rekaskrá sambandsins og síðast
en ekki síst að fara í alla skólana á
sambandssvæðinu og kynna
UMSB , en það látum við nú gera í
tilefni af 70 ára afmæli sambands-
ins.
Nýverið sendum við frá okkur
bréf til stjórnar kaupfélagsins og
fleiri aðila, sem hyggja á byggingu
stórhýsis við enda Borgarfjarðar-
brúarinnar. Þar vonumst við til
uð fá varanlegt húsnæði fyrir
starfsemi ungmennasambands-
'ns, með allri þeirri aðstöðu sem
fylgir góðu skrifstofuhúsnæði.
Við höfum nú undanfarið rætt
töluvert um félagsmálafræðsluna,
en námskeið Félagsmálaskóla
hJMFI finnast okkur nokkuð
tímafrek. Við höfum því ákveðið
að óska eftir því við félagsmála-
skólann að fá samanþjappað efni,
eí hægt er, á námskeið sem gæti
tekið jafnvel eina dagstund.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég sit
Sambandsráðsfund, sagði Þuríð-
ur, en svona fundur opnar augu
manns fyrir því hvað er að gerast
hjá samtökunum. Eg er mjög hrif-
in af því hvað snemma er byrjað
að vinna að undirbúningi fyrir
næsta landsmót. Þetta er mikið
starf og því fyrr sem undirbúning-
urinn hefst má búast við að þeim
mun betur takist til við mótshald-
ið. Mér finnst hafa vel tekist til við
afmælisverkefnið „Eflum Is-
lenskt“. Það var vel kynnt og
megum við öll vel við una. Eg tel
að það hafi alveg verið þess virði,
að hafa lagt í þetta nokkurt fé,
sagði Þuríður að lokum.
Björn Sigurbjömsson formað-
ur USAH.
Við samþykktum á síðasta árs-
þingi að minnast 70 ára afmælis
sambandsins með öflugu starfi.
Hápunktur starfsins var að við tók-
um að okkur að halda Meistara-
mót Islands í frjálsum íþróttum
14 ára og yngri í sumar. Mótið var
haldið á Blönduósi og stóð það í
tvo daga. Keppendur voru um
400 talsins og starfsmannafjöldi í
kring um 50 manns.
Einn merkasti viðburður sum-
arsins má segja að hafi verið þegar
frjálsíþróttafólkinu okkar tókst að
komast upp í aðra deild, en þau
sigruðu í keppninni í þriðju deild
sem haldin var í Vík í Mýrdal.
Það hefur oft á undaníömum ár-
um aðeins vantað herslumuninn
að það tækist, en nú er þetta orðið
að veruleika.
Varðandi það sem framundan
er þá er Húnavakan árlegt verk-
efni hjá sambandinu. Hún verður
eins og undanfarin ár í kring um
Sumardaginn fyrsta. Þar erum
við ávallt með mjög fjölbreytta
dagskrá og í tengslum við Húna-
vökuna er gefið út Húnavökurit,
Bjöm Sigurbjömsson.
sem gefið hefur verið út samfleytt í
yfir 20 ár.
Þegar ungmennasambandið varð
50 ára var gefið út sérrit á vegum
Skinfaxa um 50 ára sögu sam-
bandsins. A 60 ára afmæli sam-
bandsins nýttum við okk ur Húna-
vökuritið og skrifuðum 10 ára
sögu sambandsins frá 1962 til
1972. Þetta er í ritinu sem kom út
1973. Við stefnum að því að í rit-
inu sem kemur út í vetur, þá mun-
um við vera með söguna frá 1972
til 1982, sein Magnús Ólafsson
fyrrverandi formaður USAH rit-
ar.
A undaníörnum árum hafa ver-
ið haldin nokkuð mörg félags-
málanámskeið á sambandssvæð-
inu og hefur félagsmálaffæðslan
verið í nokkuð góðu lagi hjá okk-
ur. Við stefnum að því að koma á
félagsmálanámskeiðum í vetur og
höfum nú þegar fengið ósk frá
einu félagi innan sambandsins
um að haldið verði námskeið.
Aðspurður um Sambandsráðs-
fundinn sagði Björn að tvímæla-
laust fmndist sér athyglisverðust
ný reglugerð fyrir 18. landsmótið,
sem samþykkt var á fundinum.
Mér sýnist hafa tekist að setja
fyrir ákveðinn leka á reglugerðinni,
SKINFAXI
9