Skinfaxi - 01.12.1982, Blaðsíða 13
skinfaxi
rneð allt tungutak, til þess að
vtnna málstað hreyfmgarinnar
brautargengi.
Hér og nú vinnst ekki tími til
þess að rekja þessa sögu að neinu
marki, enda yrði þá í veigamikl-
11 m þáttum að rekja sögu íslensku
þjóðarinnar svo samofin sem hún
er sögu ungmennafélaganna í
landinu.
Félagsskapurinn átti þegar
góðan hljómgrunn meðal allra
landsmanna og málefnabaráttan
hófst. Sjálfstæðisbaráttan og bar-
atta ungmennafélaganna fyrir
aukinni andlegri og líkamlegri
menntun, vakti þjóðina af ára-
luga skammdegisdrunga og
svefni og leysti úr læðingi nýja trú
a framtíðina og aukna athafnaþrá
undir kjörorðunum. Islandi allt!
Þjóðin tók að rétta úr kútnum
og menn fengu trú á víðtæk rækt-
unarverkefni lands og lýðs, í hönd
fóru nýir tímar sem leiddu af sér
otrúlega örar tækniframfarir á
skömmum tíma. Allar þessar
hraeringar lágu á einn eða annan
hátt í gegnum margvíslega um-
Qöllun ungmennafélaganna, og
verulegan hlut hafa þau átt að
Guðjón Ingimundarson, veislustjóri, kynnir næsta ræðumann.
Ungmennafélagshreyftngin hef-
ur frá fyrstu tíð verið mjög út-
breidd og öflug í hinum dreifðu
byggðum landsins og nú á seinni
árum unnið sér sívaxandi fylgi
einnig í þéttbýlinu, þannig hefur
félagsbundnum ungmennafélög-
um á íslandi Qölgað úr 9 þúsund í
25 þúsund á rúmum áratug, og er
Ungmennafélag íslands nú ein
lang fjölmennasta félagshreyfing
Pálmi Gíslason formaður UMFI setur afmælishófið.
framkvæmd ýmissa framfaramála
fram á þennan dag. Þegar saga
Ungmennafélags íslands kemur
fyrir sjónir okkar von bráðar í
nýrri útgáfu, kæmi mér ekki á
óvart að það sannaðist að mann-
ræktin á vegum ungmennafélag-
anna liafi verið sá hornsteinn sem
mest munaði um í þá undirstöðu
sem við getum kallað hið nýja ís-
land í dag. Aldamótakynslóðin
svonefnda á óskipta viðingu okkar
og þökk, allir sem á eftir komu litu
upp til hennar og hafa jafnan sett
sér það mark að verða föður- eða
móður-betrungar og láta ekki
fánann falla. Eftir fræga baráttu
unnu ungmennafélagar sigur í
fánamálinu, baráttusöngvar voru
sungnir og ungt fólk með hlutverk
markaði spor fram á veginn.
Þessir vegir hafa ekki alltaf verið
greiðfærir, fremur en nú, en úr
okkar hópi hafa samt alltafkomið
þjóðarleiðtogar og hæfir félags-
forustumenn sem orðið hafa að
axla ýmsar byrðar og taka vanda-
samar ákvarðanir í nafni fjöldans
og það sem ánægjulegra er alla
jafnan reynst þeim vanda vaxnir.