Skinfaxi - 01.12.1982, Síða 20
BIKARKEPPNIN í SUNDI
Bikarkeppni Sundsambands
Islands var háð í nóvember s.l.,
bæði í 1. og 2. deild. Geysihörð
keppni var á toppnum og á botn-
inum í báðum deildum og hart
barist um stigin.
1. deild.
Keppnin í 1. deild í sundi fór
íram í Sundhöll Reykjavíkur helg-
ina 26.-28. nóvember. Bikar-
meistari varð að þessu sinni lið
IA, en það er í í'yrsta sinn sem þeir
hljóta þann titil. Skagamenn
fengu 203 stig, í öðru sæti varð
SundfélagiðÆgir í Reykjavík með
178 stig. HSK, sem varð bikar-
meistari í fyrra, varð að láta sér
nægja þriðja sætið, hlaut 175 stig.
Geysihörð og jöfn keppni var á
milli þessara þriggja liða um
fyrsta sætið og var það ekki fyrr en
Tekið á í baksundi i bikarkeppninni.
í síðustu greinunum, sem úrslitin
réðust. í fjórða sæti var Umf.
Njarðvíkur hlaut 59 stig og í
fimmta og neðsta sæti urðu Vest-
mannaeyingar með 32 stigog falla
þeir í 2. deild. Sá einstaklingur
sem mesta athygli vakti ámótinu,
var Tryggvi Helgason HSK.
Hann setti fjögur Islandsmet í
bringusundi og er það vel að verki
verið, því þarna var einungis
keppt um stig, en minna lagt upp
úr því að fá góðan tíma.
Tryggvi kom á mótið frá Sví-
þjóð, þar sem hann stundar nám
og sundæfingar. Greinilegt er að
Tryggvi er í stöðugri framför og á
vafalausl eftir að bæta fleiri Is-
landsmetum við í vetur.
2. deild.
Keppnin í 2. deild var háð hálf-
Umf. Vorblóm stóð sig best
Ásvaldur Guðmundsson gjaldkeri Umf. Vorblóm og varagjald-
keri HVÍ, kannar traustleika trébrúarinnar ásamt ungum
göngugarpi. f baksýn sést hiuti af göngufólkinu hvíla sig á
göngunni.
Besta hlutfallslega þátttaka sem vitað er um í
Göngudegi fjölskyldunnar í sumar var hjá Umf.
Vorblóm á Ingjaldssandi, en þar gengu tvöfalt
fleiri cn búa á svæðinu.
Safnast var saman við Ostahús, gengið í fjör-
unni frá Sæbólslendingu að Langárós og uppmeð
Langá meðfram árgrundum og yfir timburgöngu-
brú að fornum stckk skáhalt neðan við Hrafna-
skál. Þar var staðnæmst, sungið og þegnar veil-
ingar frá Mjólkursamsölunni. Veður var ágætt,
en nokkuð kalt. Göngustjóri var Sigurvin Guð-
mundsson á Sæbóli.
Alls tóku 54 þátt í göngunni eða um 200%
þátttaka, miðað við íbúaíjölda. Sumir voru burt-
fluttir félagar og aðrir óbeint tengdir félaginu.
Yngsti þátttakandinn var 6 mánaða, en sá elsti vel
á áttræðisaldri.
Formaður Umf. Vorblóm, Finnbogi Kristjáns-
son, kom nýverið á skrifstofu U.MFÍ og sagði
okkur frá göngudeginum. IS
20
SKINFAXI