Skinfaxi - 01.08.1984, Blaðsíða 5
verður við komið. Áhyggjur okk-
ar vegna vofu atvinnuleysis er
ekki ástæðulaus. Vandamál þau
Sem upp hafa komið í nágranna-
löndum okkar, þar sem fjöldi
fólks útskrifast úr skólum án þess
að eygja atvinnumöguleika, eru
gífurleg.
Til að vekja athygli á þessari
óaráttu tóku þúsundir ung-
■nennafélaga þátt í hjólreiðaferð
hringinn í kring um landið.
Ungt fólk á íslandi á betri
framtiðarmöguleika í dag en
nokkru sinni fyrr, það þarf hins-
Vegar að gera ungu fólki kleift að
stunda heilbrigt tómstundastarf.
j^mg aðstaða til tómstunda- og
'Þróttastarfs, ættu að vera mark-
mið sem allir ynnu að, þá þyrfti
engu að kvíða um framtíðina.
Þátttakendur á þessu móti hér
eru yfír fimmtánhundruð, starfs-
nienn um 600. Þegar þeim hefur
verið bætt við sem unnið hafa að
nndirbúningi heima í héraði,
Wálfurum og aðstoðarfólki, má
•ntla að ekki færri en fjögurþús-
und manns hafi á einn eða annan
[*átl undirbúið eða munu taka
Patt í mótinu.
Torystumenn ungmennafélaga.
^akkir skulu ykkur færðar hér
Si<JNFAXI
Hópgangan leggur aí staö (rá Njarövíkurvelli.
fyrir mikil störf á liðnum árum og
þann metnað sem þið hafið lagt í
að gera þátttöku ykkar sambands
sem mesta á þessu móti.
Gott íþróttafólk glæsileg
íþróttamannavirki hér í Keflavík
og Njarðvík bíða ykkar, þið hafið
lagt hart að ykkur við æfingar og
undirbúning. Sumir stefna að
sigri, aðrir að því að fá stig, en all-
ir stefna að því að gera sitt besta.
Gott íþróttafólk. Glæsilegir
fulltrúar íslenskrar æsku. Leggið
metnað ykkar i drengilega fram-
komu innan vallar sem utan, megi
leikgleði verða einkenni þessa
móts. Takið sigri sem ósigri með
jafnaðargeði.
18. landsmót UMFI er sett, ís-
landi allt.
Hafsteinn Þorvaldsson stjórnar
Qöngunni aí röggsemi.
Þrotlaus þjálíun
Ávarp íþróttamannsins, Gunnars Þorvaröarsonar
Gunnar Þorvaröarson.
Góðir landsmótsgestir!
Ég ávarpa ykkur fyrir hönd
þeirra 1500 keppenda, sem hér
eru skráðir til leiks á 18. Lands-
móti UMFÍ. íþróttakeppni lands-
mótsins er hafin, að baki liggur
þrotlaus þjálfun íþróttafólksins
sem heitir því að leggja sig fram í
drengilegri keppni.
Framkvæmdaraðilum mótsins
færum við heillaóskir og þakkir
fyrir þá aðstöðu sem okkur er bú-
in hér á mótsstað. Megi andi vin-
áttu og gleði ríkja í öllu okkar
starfi. ÍSLANDI ALLT!
5