Skinfaxi - 01.08.1985, Page 3
Sktníœd
4. tbl. - 76. árg. -1985
ÚtgeíandL Ungmennalélag íslands • Ritstjóri:
Guðmundur Gíslason. • Stjóm U.M.F.Í. Pálmi
Gíslason lormaóur. Bergur Torlason, varaíor-
maóur, Jón G. Guóbjömsson gjaldkeri. Bjöm
Ágústsson, ritart Gudmundur H. Sigurósson, meó-
stjómandi, Þóroddur Jóhannsson meóstjóm-
andi Diórik Haraldsson, meðstjórnandi. • Aí-
greiösla Skiníaxa: Skriístoía U.M.F.Í. Mjölnisholti
14, Reykjavík, sími 14317 • Setning, umbrot og
íilmugerö: Prentþjónustan hl. • Prentun Prent-
smiójan Rún sL
Meöal eínis:
Bls.
Íþróttahátíö HSK ....... 4
Danmerkuríerð UMFÍ ... 6
Brids................... 8
Úr íréttabréíum ........ÍO
Hvað gleymdirðu
skónum ................ 12
Skákþáttur ............. 14
Bikarkeppni FRÍ
1. deild ............... 16
Bikarkeppni FRÍ
2. deild ............... 18
Bikarkeppni FRÍ
3. deild ............... 21
Norrœn ungmenna-
vika í
Finnlandi.............. 23
Tóbaksvarnir .......... 25
Vísnaþáttur............. 27
Hvaöa fugl er
þama ................... 28
í minningu
Siguröar Greipssonar ... 30
Forsíðumynd:
Hún er aí Unni Steíánsdóttur HSK
í keppni á landsmóti dönsku
ungmennaíélaganna í sumar.
Frjálsar íþróttir
Á uppleiö
eöa
undanhaldi?
Nú er að líða að lokum keppnistímabils frjálsíþróttafólks hér
á landi. Því er ekki úr vegi að líta um öxl og íhuga stöðu þessarar
iþróttagreinar. En hvers vegna að fjalla um þetta efni í tímariti
UMFÍ? Jú, einfaldlega vegna þess að þetta er sú íþróttagrein sem
borið hefur mest á í starfi margra ungmennafélaga og er að
flestra dómi hápunktur Landsmóta UMFÍ.
Keppnisfólk UMFÍ er nýlega komið úr frækilegri för á Lands-
mót dönsku ungmennafélaganna. Hópurinn stóð sig þar með
mikilli prýði og vann til fjölda verðlauna. Deildakeppni Frjáls-
íþróttasambandsins ereinnig nýlega lokið. Ungmennasambönd-
in skipa þar verðugan sess. Á næsta ári keppa 2 ungmennasam-
bönd í 1. deild, öll lið 2. deildar og flest eða öll 3. deildarlið eru
einnig frá ungmennasamböndum. Af þessari upptalningu er
ljóst að ungmennafélögin eru stærsti aðilinn að frjálsíþrótta-
starfi hér á landi.
En hvernig er svo aðstaðan til frjálsíþróttaiðkana hér á landi.
Fljótt á litið virðist stefna í rétta átt víðast hvar. Margir íþrótta-
vellir hafa verið teknir í notkun á seinni árum og þeir eldri verið
endurbættir. Það er samt ekki vansalaust að Laugardalsvöllur-
inn, aðalleikvangur okkar Islendinga, skuli vera svo illa farinn
að litlu hafi munað að aflýsa yrði Evrópubikarkeppninni sem er
tvímælalaust einn stærsti frjálsíþróttaviðburður til þessa. Þar
fær afreksfólk okkar tækifæri til að etja kappi við heimsfrægt
íþróttafólk og við verðum að leggja því til þolanlegar aðstæður
á heimavelli.
Unglingastarf er ekki síður mikilvægt í frjálsum íþróttum en
öðrum greinum. Víða er vel unnið að þeim málum en betur má
ef duga skal því undirstöðuna má ekki vanta. Athygli vekur
hversu fáir sækja frjálsíþróttamót hér á landi. Undrast ég oft að
foreldrar skuli ekki fylgjast betur með börnum sínum og veita
þeim meiri hvatningu. Hér verður að gera betur því að fátt veitir
meiri ánægju en hvatning og meðvitund um að einhver taki eftir
því sem vel er gert. Þótt við ungmennafélagar eigum margt frá-
bært frjálsíþróttafólk innan okkar raða jafnvel á heimsmæli-
kvarða, þá megum við ekki gleyma því að við þurfum að hlúa
að þeim yngri. Við þurfum að veita þeim þá aðstöðu og þá
hvatningu sem þarf til að stunda holla íþrótt og öðast þannig
gleði og heilbrigði á líkama og sál.
Guðmundur Haukur Sigurðsson
SIUNFAXI
3