Skinfaxi - 01.08.1985, Side 6
Danmerkuif erö UMFI
1985
Setning Landsmóts dönsku ungmennafélaganna er stórglæsileg at-
höfn. Þarna er síöasti hópurinn aö komainn á völiinn en á hann var
raöaö rúmlega 25 þúsund manns viö setningarathöfnina. Ljósm.
Dagana 26. júní til 3. júlí
dvaldist hópur ungmennafélaga í
Odense í Danmörku. Þarna var á
ferðinni hópur frjálsíþróttafólks
að þiggja boð frá DDGU um
þátttöku í landsmóti dönsku ung-
mennafélaganna.
Landsmót Dananna eru stór-
brotnar íþróttahátíðir sem eiga fá
sína líka. Keppendur ,eða þátt-
takendur í þessu móti voru milli
25—30 þúsund, en langmest ber á
fimleikafólki á þessum mótum og
hafa þeir verið 18—20 þúsund að
þessu sinni. UMFÍ hefur tekið
þátt í þessum mótum óslitið frá
1971 og hefur DDGU jafnlengi
verið boðið að senda fimleika-
flokka á okkar Landsmót. Þetta
hefur verið hin ánægjulegasta
samvinna og nokkurskonar auka-
verðlaun til þess frjálsíþrótta-
fólks sem best hefur staðið sig á
Landsmótum UMFÍ.
UMFI/PG.
Auk keppni í frjálsum íþróttum
á landsmótinu tókum við þátt í
öðru móti sem OAG Odense
Amts Atletikforening stóð fyrir,
en þar var keppt á mun betri velli
en á sjálfu landsmótinu.
Þetta var ánægjuleg ferð
óvenju samhelts hóps og ekki dró
það úr ánægjunni að frammi-
staða hans á vellinum var alveg
frábær og þeir voru ótrúlega
margir sem settu þarna persónu-
leg met eða náðu í það minnsta
sínum besta árangri á árinu, auk
þess sem Svanhildur Kristjóns-
dóttir setti glæsilegt íslandsmet í
200 m. hlaupi. í UMFÍ liðinu
voru 11 stúlkur og 11 drengir,
íþróttafólk í fremstu röð og ein-
staklega ánægjulegir ferðafélag-
ar.
Fararstjórnin þau, Pálmi Gísla-
son, Diðrik Haraldsson, Dóra
Gunnarsdóttir og Sigurður Geir-
dal sendir öllum þátttakendum
bestu þakkir fyrir ánægjulega
samfylgd og þakkir fyrir glæsi-
lega frammistöðu.
Hér á eftir fara nöfn og árangur
]>eirra sem kepptu á mótinu.
Aðalsteinn Bernharðsson 100
m. 10,7 sek. 200 m. 21,4 sek. 400
m. 47,7 sek. Unnar Vilhjálmsson
hástökk 2,05m. Már Hermanns-
son 800 m. 2:02,2 mín. Hafsteinn
Þórisson hástökk 2,00 m. Guð-
mundur Sigurðsson 400 m. 51,2
sek. langstökk 6,57 m. Sigurjón
Hannes Hrafnkelsson í haröri baráttu í 1500 m. Hann kom í mark á
tímanum 4:06,9 mín. Ljósm. UMFÍ/PG.
6
SKINFAXI