Skinfaxi - 01.08.1985, Side 8
Bríds
Hvar er
tíguldiottningin ?
Leitiö og þér muniö íinna
Guömundui P. Ainarson
Sá læknir þætti ekki traust-
vekjandi sem gæfi umhugsunar-
laust mixtúru við verkjum í kvið-
arholi, sem síðar kemur í ljós að
orsakast af botlangabólgu. Eða
bifvélavirki sem rífur í sundur bíl-
vél til þess eins að komast að því
að viftureimin er slitin. Slík
vinnubrögð eru ekki til fyrir-
myndar, enda hefur það löngum
þótt gullvæg regla að kynna sér
alla málavöxtu áður en afstaða er
tekin eða hafist er handa við eitt-
hvert verk. Og það gildir ekki að-
eins um lækna og bifvélavirkja,
heldur einnig, og ekki síður,
bridsspilara. Ef sagnhafi hefur
tvo eða fleiri möguleika á að
vinna samning, ætti hann að
reyna að leita ráða til að afla upp-
lýsinga sem gætu skorið úr um
„leiðina til lifsins“. Oft eru spilar-
ar blindir fyrir mikilvægi upplýs-
ingaöflunar af þessu tagi, sem er
skýringin á því hvers vegna með-
alskussinn finnur ekki drottning-
ar nema í annað hvort skipti.
Meistarinn hins vegar, grefur eftir
vísbendingum og finnur þær oft-
ar en ekki. Lítum á tvö dæmi:
Norður
sÁKD
h Á4
t KG853
1 KDG
Suður
s 942
h KD2
t Á1042
1 Á52
Suður verður sagnhafi í sjö
gröndum án þess að mótherjarnir
hafi blandað sér í sagnir. Vestur
spilar út spaðagosanum. Gerðu
spilaáætlun áður en þú lest
áfram.
Það er fljótséð hvert vanda-
málið í þessum samningi er:
að finna blessaða tíguldrottning-
una. Auðvitað er hægt að bretta
upp ermarnar og hugsa með sér,
að illu sé best aflokið, og ráðast til
atlögu við litinn, taka ás og kóng
eða svína á annan hvorn veginn.
En betra er að fara sér hægar og
safna upplýsingum um skipting-
una í hinum litunum áður en af-
staða er tekin tígulíferðarinnar.
Táka sem sagt slagina í hliðarlit-
unum fyrst.
Og hvað kemur þá í ljós? Til
dæmis þetta: Andstæðingarnir
fylgja báðir lit í spaða og hjarta,
svo það er lítið á þvi að græða, en
þegar laufinu er spilað í annan
gang hendir austur hjarta. Aha,
vestur á þá sex lauf. Og sex spil
hefur hann sýnt í hálitunum, svo
hann getur ekki átt meira en einn
tígul.
Vestur
s G107
h 873
t 9
1 1087643
Norður
sÁKD
h Á4
t KG853
I KDG
Suður
s 942
h KD2
t Á1042
1 Á52
Austur
s 8653
h G10965
t D76
1 9
Það er því hægt að spila tígli á
kónginn og svína svo tígultíunni
af 100% öryggi.
Þetta spil kom reyndar upp í
Ólympíumótinu árið 1968 og í
suðursætinu sat bandarískur spil-
ari að nafni Robinson. Hann
famm að sjálfsögðu tíguldrottn-
inguna, enda væri hann ekki tæk-
ur í landslið ef hann klúðraði spili
eins og þessu.
Aftur er það tíguldrottningin
sem er í sviðsljósinu, en fjögra
spaða samningur sagnhafa stend-
ur og fellur með því hvort honum
tekst að hafa hendur i hári hennar
eða ekki:
Norður
s K63
h ÁD3
t ÁG105
Vestur ] 862
Pass Suður
Pass s Á8
h KG962
t K73
1 D73
Norður
1 tígull
3 hjörtu
Pass Austur
2 lauf
Pass
Pass
Suður
2 hjörtu
4 hjörtu
8
SKINFAXI