Skinfaxi - 01.08.1985, Qupperneq 10
Ui fréttabréfum
— Vegna Árs æskunnar var
ákveðið að planta um 26000 trjá-
plöntum eða jafnmörgum og
meðlimum ungmennafélaganna.
Og fékk USÚ um 750 plöntur í
sinn hlut og var það stafafura,
þeim var síðan skipt niður á fé-
lögin til gróðursetningar. Þær
sem urðu eftir voru gróðursettar
inn við Haukafell.
— Þá voru reknar sumarbúðir
í byrjun sumars og stóðu þær yfir
í viku, og voru þar 16 krakkar
aðallega frá Höfn og úr Nesjum.
Farið var í íþróttir og heimsókn á
bóndabæ til að sjá hvernig bú-
skapurinn gengur fyrir sig.
— Á göngudegi fjölskyldunn-
ar 22. júní voru það aðeins fé-
lagar úr Umf. öræfa sem gengu.
Fóru þeir á bílum upp á Háöxl
fyrir ofan Hnappavelli. Þaðan
gengu þeir austur á Brýnnar,
langleiðina að Stigjökli þannig að
sást niður í Stigagljúfur. Þátt í
göngunni tóku 43 Öræfingar á
öllum aldri.
— í lok júlí er áætlað að halda
leikjanámskeið fyrir 8—12 ára
börn á Höfn, og verður Hafdís
Hilmarsdóttir leiðbeinandi.
— Nú er héraðsmótið í knatt-
spyrnu í eldri flokk alveg að verða
lokið og er aðeins úrslitaleikurinn
eftir. En hann er milli Umf.
Snartar og Umf. Langnesinga.
Mótið í yngri flokknum er ekki
búið, en þar eru aðeins þrjú lið.
Þá er áætlað að halda bikarmót í
eldri flokknum á Raufarhöfn 17.
ágúst, og um kvöldið uppskeru-
dansleikur í félagsheimilinu
Hnitbjörgum á Raufarhöfn.
Bikarmótið í yngri flokknum á að
vera helgina 27.—28. júlí í Ás-
byrgi.
— Þá verður haldið Öldunga-
mót í frjálsum íþróttum fyrir 30
ára og eldri. Keppt verður i 100 m.
hlaupi, langstökki og kúluvarpi
bæði í karla og kvennaflokki.
— í tilefni þess að Umf. Austri
á Raufarhöfn hefur ráðist í það
mikla verk að byggja nýjan
íþróttavöll er áætlað að halda
unglinga og bikarmót í frjálsum
íþróttum 18. ágúst. En nú í ár
verður Umf. Austri 50 ára.
— Búið er að gera barmmerki
með merki sambandsins og eru
þau nú til sölu og kosta kr. 50.
U.D.N.
Á síðasta þingi U.D.N. voru
samþykkt ný lög fyrir sambandið
og segir þar að stjórnin skuli skip-
uð 5 mönnum í stað 3. Og er það
von manna að þessi breyting verði
til góðs fyrir alla þá er starfa að
þessum málum innan sambands-
ins. Þá var Sveinn Gestsson kos-
inn formaður i stað Kristjáns
Gíslasonar sem ekki gaf kost á sér
aftur. — íþróttamaður U.D.N.
1984 var kjörinn Hálfdán Krist-
insson. — Kjötpokaverksmiðj-
urnar ákváðu að gefa verðlauna-
gripi fyrir bestu afrek karla og
kvenna á héraðsmóti. — Starfs-
menn sambandsins í sumar voru
þau Helga Kristjánsdóttir fram-
kvæmdastjóri og Ólafur Hall-
dórsson þjálfari. — Vormót
U.D.N. 1985 var haldið á Búðar-
dalsvelli 23. júní, og var keppend-
um frá H.S.H. boðið á mótið og
komu 7. Og er það vonandi byrj-
un á góðu samstarfi milli sam-
bandanna. Úrslit í stigakeppninni
urðu þessi: 1). Umf. Ólafur Pái
183 stig 2). Umf. Stjarnan 125 stig
3). Umf. Dögun 44 stig 4). Umf.
Æskan 33 stig 5). Umf. Aftureld-
ing 19 stig 6). Umf. Unglingur 3
stig.
Iþióttasamband
fatlaöra
Dagana8. til 21. september n.k.
fer fram hér á landi norræn
trimmlandskeppni, og er hún sú
þriðja í röðinni. Og hafa íslend-
ingar sigrað með glæsibragð í
bæði skiptin þ.e. 1981 og 1983. í
keppninni þarf að trimma minnst
2,5 km. og er keppnisgreinarnar
þessar: ganga, hlaup, skokk, hjól-
reiðar, hjólastólaakstur, hesta-
mennska og róður. Þessi keppni
er í fyrsta lagi keppni milli Norð-
urlandanna og í öðru lagi innan-
landskeppni þar sem héraðs-
samband sem flest stig hlýtur
10
SKINFAXI