Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1985, Qupperneq 11

Skinfaxi - 01.08.1985, Qupperneq 11
miðað við ibúafjölda sigrar. Sem fyrr er megintilgangurinn með þessari keppni að auka skilning hinna fötluðu á því að stunda íþróttir og útivist. 14. 15. september fer fram á Kópavogsvelli Haustmót íþrótta- sambands Fatlaðra í frjálsum íþróttum. Hafa samskonar mót verið haldin tvö s.l. ár og tekist með miklum ágætum, og hafa verið á milli 80 þátttakendur í bæði skiptin. Norðurlandamót í bogfimi var haldið hér á landi 13. apríl s.l. og voru keppendur 26 frá öllum Norðurlöndunum nema Færeyj- um. Bestum árangri íslensku keppendanna náði Elísabet Vil- hjálmsdóttir, en hún varð önnur í kvennaflokknum með 506 stig af 600 mögulegum. Ný félög hafa verið stofnuð á sambandssvæði UÍA sem hafa íþróttir fyrir fatlaða á stefnuskrá sinni, en þau eru Viljinn Seyðis- firði og Örvar á Egilsstöðum. Auk þeirra hafa verið stofnaðar deildir innan ungmenna- og íþróttafélaga á Austfjörðum eins og t.d. á Höfn og í Neskaupstað. Glœsilegt mót Helgina 10.—11. ágúst var Evrópubikarkeppnin í frjálsum íþróttum haldin á Laugardals- velli. Var þetta mót mjög vel heppnað í alla staði og sýnir það að hægt er að halda svona mót hér á landi. Þrjú íslandsmet voru sett þ.e. í 100 og 200 m. hlaupi kvenna og var Svanhildur Krist- jónsdóttir úr UMSK þar að verki í bæði skiptin, og hún var einnig í sveitinni er sigraði í 4x100 m. boðhlaupi kvenna. Árangur ís- lendinga var mjög góður og þá sérstaklega fyrri daginn en mun lakari þann seinni. Er fyllsta ástæða til að óska FRÍ til ham- ingju með vel heppnað mót. Spjótkastarar í fremstu röð. Einar Vilhjálmsson og Trine Solberg frá Noregi. Ljósm. Ingimundur Ingimundarson. Fiásagnii — sögur Ekki veit ég hve oft menn hafa verið hvattir í þessu blaði til að senda því efni eða hugmyndir um efni, en það hefur eflaust verið ansi oft. Þó ætla ég að biðja ykk- ur einu sinni enn að senda blaðinu efni hvort sem það eru fréttir eða frásagnir af ferðalögum, og svo ég tali ekki um stuttar sögur. Efnið þarf ekki að vera upp á margar síður og helst ekki, bara eitthvað stutt og skemmtilegt. Því það eru örugglega mjög margir sem luma á góðu efni eða hug- myndum en koma sér ekki að því að skrifa það á blað. Hristið nú af ykkur slenið og sendið okkur línu. G. G. SKINFAXI 11

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.